Viðskipti erlent

Snjallúr fékk 3.4 milljónir dala í frjálsum framlögum

Verkefni Erics safnaði milljón dollurum á rúmum sólarhring. Á myndinni má sjá Pebble "snjallúrið.“
Verkefni Erics safnaði milljón dollurum á rúmum sólarhring. Á myndinni má sjá Pebble "snjallúrið.“ mynd/Pebble
Kanadískur athafnamaður hefur fengið rúmar 380 milljónir króna í frjálsum fjárframlögum vegna nýstárlegs armbandsúrs sem hann hefur þróað síðustu ár.

Eric Migicovsky notaði vefsíðuna Kickstarter til að fjármagna verkefnið. Á vefsíðunni geta frumkvöðlar kynnt verkefni sín og áætlanir - almenningur getur síðan styrkt verkefnin með fjárframlögum.

Verkefni Erics safnaði milljón dollurum á rúmum sólarhring og hefur í heild safnað rúmum 3 milljónum dollara. Upphaflegt markmið Erics var að safna 10 þúsund dollurum.

Armbandsúrið er kallað Pebble og hefur verið í þróun síðustu þrjú ár. Skjár úrsins er úr stafrænu bleki - rétt eins og skjár spjaldtölvunnar Kindle sem þróuð er af Amazon.

Pebble tengist snjallsímum þráðlaust og er það hugsað sem framlenging á notendaviðmóti þeirra. Þannig munu notendur geta stjórnað tónlistarskrám sem geymdar eru í símanum, lesið tölvupóst og jafnvel mælt hraða og vegalengdir.

Orkunýting úrsins er afar lítil og þurfa notendur aðeins að hlaða úrið einu sinni í viku.

Ekki er vitað hvenær Pebble fer í framleiðslu en Eric vonast til að ljúka hönnun þess á næstu mánuðum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×