Viðskipti erlent

Losun gjaldeyrishafta er lykilatriði fyrir Ísland

Franek Rozwadowski og Julie Kozcak, starfsmenn Alþjóðagjaldeyrissjóðsins, á blaðamannfundi á Kjarvalsstöðum í morgun.
Franek Rozwadowski og Julie Kozcak, starfsmenn Alþjóðagjaldeyrissjóðsins, á blaðamannfundi á Kjarvalsstöðum í morgun.
Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn segir að lykilatriði sé fyrir Ísland að ná að losa um gjaldeyrishöftin. „Það er engin auðveld lausn á þessu vandamáli. Það er fyrir hendi áætlun um losun haftanna og það skiptir máli að allir þeir sem koma að því að losa um höftin, séu einbeittir á verkefnið," sagði Julie Kozcak, sem hefur séð um málefni Íslands hjá Alþjóðagjaldeyrissjóðnum, í viðtali við fréttastofu í morgun.

Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn fer yfir stöðu efnahagsmála hér á landi í tilkynningu sem sjóðurinn sendi frá sér í morgun og kynnti á fundi í morgun.

Í tilkynningunni kemur m.a. fram að sjóðurinn leggist alfarið gegn frekari almennri niðurfærslu verðtryggðra skulda, þar sem sú leið komi ekki þeim til hjálpar sem séu í mikilli þörf fyrir aðstoð, auk þess sem staða ríkissjóðs Íslands sé þannig að hann þoli ekki að taka á sig kostnað vegna frekari aðgerða.

Þá kemur fram að staða efnahagsmála hér geti versnað ef efnahagsvandinn í heiminum, einkum í Evrópu, dýpkar enn frekar.

Sjá má tilkynningu Alþjóðagjaldeyrissjóðsins í heild sinni hér.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×