Um 37% Dana sinnir einkaerindum í vinnutímanum 7. mars 2012 10:23
Ný könnun sýnir að yfir þriðjungur Dana sinnir ýmsum einkaerindum sínum í vinnutímanum. Það var ráðningarstofan Randstad í Kaupmannahöfn sem vann þessa könnun meðal launþega. Í ljós kom að 37% þeirra notaði vinnutímann til að sinna ýmsum einkaerindum, eins og að svara persónulegum símtölum, senda tölvupósta, skoða athyglisverðar netsíður, panta miða á ýmsa viðburði eða snatta fyrir sjálfan sig út í bæ. Á móti kemur að yfir helmingur aðspurðra eða 52%, störfuðu að verkefnum fyrir vinnuveitendur sína utan hefðbundins vinnutíma ef yfirmaður þeirra fór fram á slíkt. Forstjóri Randstad segir í samtali við börsen að þessar niðurstöður komi ekki á óvart. Mikilvægt sé að skilningur ríki milli vinnuveitenda og launþega um svona einkastúss í vinnutímanum og að jafnvægi ríki milli þess og þeirrar vinnu sem launþegar taka að sér utan vinnutíma síns.
Mest lesið Stærðin skiptir ekki máli Atvinnulíf Megi troða „singles day“ upp í greiðslugáttirnar á sér Neytendur Ólafur Ingi: „Ég er kostuð eiginkona“ Atvinnulíf Deildarstjóri, lögfræðingur og viðskiptastjóri ráðin til Mílu Viðskipti innlent Einróma niðurstaða að Hörður sé eins og Kristján í Frozen Atvinnulíf Óábyrgt að afskrifa kílómetragjaldið Neytendur Kílómetragjaldið mögulega fórnarlamb stjórnarslita Neytendur Nýr flugrekstrarstjóri Icelandair Viðskipti innlent „Reglugerðin tekur gildi hvort sem menn hafa þetta hugrekki eða ekki“ Atvinnulíf Engin endurgreiðsla þrátt fyrir rifbeinsbrot Neytendur Fleiri fréttir Linkedin sektað um tugi milljarða Samkeppni eykst í Grænlandsflugi Sekta Google um meira en allan pening heimsins Adidas og Ye sættast Bjóða upp á veðmál um leiki barna og styrkja knattspyrnurisa Bein útsending: Hver hlýtur hagfræðiverðlaun sænska seðlabankans? United Airlines hefur flug milli New York og Nuuk Viðskiptavinir gjaldþrota rafmyntakauphallar endurheimta milljarða Samþykktu allt að 45 prósent toll á kínverska rafbíla Samið um lok umfangsmikils verkfalls hafnarverkamanna Sjá meira