Viðskipti erlent

ESB skýrsla: Enn mikil hætta á gjaldþroti Grikklands

Leynileg skýrsla sem unnin var á vegum Evrópusambandsins sýnir að þrátt fyrir nýtt neyðarlán sé enn mikil hætta á að Grikkland verði gjaldþrota.

Bæði Reuters og Financial Times hafa komist yfir þessa skýrslu en Reuters segir að innihald hennar hafi valdið því að fjármálaráðherrar evrusvæðisins voru í vafa um hvort hið nýja neyðarlán kæmi að einhverju gagni eða ekki.

Í skýrslunni er bent á margar mótsagnir sem felast í þeim skilyrðum sem sett eru með láninu annarsvegar og markmiðum þess hinsvegar. Sem dæmi sé Grikkjum ætlað að skera verulega niður í rekstri hins opinbera m.a. með fjöldauppsögnum á opinberum starfsmönnum. Þessi niðurskurður muni draga mjög úr skatttekjum ríkisins sem svo aftur gerir það erfiðara að standa í skilum með afborganir af neyðarláninu. Þannig muni fjárlagahallinn aukast en ekki minnka. Í besta falli muni Grikkir þurfa 50 milljarða evra neyðaraðstoð í viðbót innan næstu 10 ára.

Þá er hætta á að afskriftir þær sem körfuhafar eru neyddir til að taka á sig muni gera það að verkum að enginn vilji lána Grikkjum í framtíðinni.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×