Viðskipti erlent

Tveir sjóðir gerðu tilboð í Iceland

Tveir fjárfestingarsjóðir, Bain Capital og BC Partners, lögðu fram tilboð í Iceland Foods verslunarkeðjuna áður en tilboðsfresturinn rann út þriðjudaginn var. Þetta hefur Reuters eftir ónafngreindum heimildum.

Bæði tilboðin munu vera nálægt verðhugmyndum skilanefna Landsbankans og Glitnis sem vilja fá 1,5 miljarða punda fyrir keðjuna.

Fram kemur á Reuters að ekki sé ljóst hvort að verslunarkeðjan Morrison hafi einnig lagt fram tilboð en áhöld voru um hvort Morrison gæti keypt Iceland vegna samkeppnissjónarmiða.

Verslunarkeðjan Asda hætti við að bjóða í Iceland en mun hafa áhuga á að kaupa hluta af verslunum Iceland.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×