Viðskipti erlent

Kína reiðir sig 175,6% á Bandaríkin

Magnús Halldórsson skrifar
Kína er framleiðslustórveldi. Í Kína er mikill framleitt af vörum fyrir alþjóðamarkaði, ekki síst Bandaríkjamarkað. Hér sjást starfsmenn við fatnaðarframleiðslu.
Kína er framleiðslustórveldi. Í Kína er mikill framleitt af vörum fyrir alþjóðamarkaði, ekki síst Bandaríkjamarkað. Hér sjást starfsmenn við fatnaðarframleiðslu.
Gordon Chang, sérfræðingur viðskiptatímaritsins Forbes í málefnum Kína og Asíu, segir að nýjustu tölur um vöruskiptajöfnuð Kína sýna að samband landsins við Bandaríkin sé að verða enn nánara en áður.

Í pistli sem hann skrifar í nýjasta rit Forbes, og birtur er á vefsíðu tímaritsins, segir að jákvæður vöruskiptajöfnuður Kína í fyrra hafi í heild verið 155,1 milljarður dollara, eða ríflega 19 þúsund milljarða króna. Chang segir að samkvæmt opinberum tölum Kína og Bandaríkjanna þá sé jákvæður vöruskiptajöfnuður Kína gagnvart Bandaríkjunum á fyrstu ellefu mánuðum ársins í fyrra 253,4 milljarðar dollara, eða sem nemur 175,6 prósent af heildar jákvæðum vöruskiptajöfnuði landsins í fyrra.

Spár benda til þess að jákvæð vöruskipti Kínverja gagnvart Bandaríkjunum fari yfir 300 milljarða dollara á næsta ári eða sem nemur ríflega 37 þúsund milljörðum króna.

Viðskiptaleg tengsl Kína og Bandaríkjanna hafa aukist hratt á síðustu árum, en Kínverjar eiga ríflega fjórðung af þjóðarskuldbindingum bandaríska ríkisins.

Sjá má pistil Chang hér.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×