Viðskipti erlent

Vaxandi spenna vegna vanda Grikkja

Angela Merkel, kanslari Þýskalands, er undir mikilli pressu um að beita sér fyrir því að skuldavandi Grikklands verði leystur.
Angela Merkel, kanslari Þýskalands, er undir mikilli pressu um að beita sér fyrir því að skuldavandi Grikklands verði leystur.
Vaxandi spennu gætir nú meðal þjóðarleiðtoga Evrulandanna vegna efnahagsvanda Grikklands. Fyrirsjáanlegt þykir að Grikkir geti ekki staðið við skuldbindingar sínar í mars næstkomandi þegar 14,4 milljarða evra, tæplega 2.300 milljarðar króna, falla á gjalddaga.

Ráðamenn í Grikklandi hafa undanförnu fundað stíft með sérfræðingum Alþjóðagjaldeyrissjóðsins, Seðlabanka Evrópu og fulltrúum úr sérstöku kröfuhafaráði þeirra fjármálastofnanna sem eiga grísk skuldabréf.

Í þessum efnum er ekki verið að tjalda til einnar nætur. Samkvæmt frásögn breska ríkisútvarpsins BBC í morgun, miðar áætlun grískra stjórnvalda að því að gera ríkisfjármálin í Grikklandi sjálfbær árið 2020 eða eftir um átta ár. Það finnst mörgum vera fulllangur tími, og hefur þýski fjármálaráðherrann, Wolfgang Schaeuble, sagt að það sé algjört lágmark að ríkisfjármálin verði þá komin í lag. Helst þurfi þetta að gerast fyrir árið 2016, eða eftir fjögur ár.

Margir hafa hins vegar talað fyrir því að óhjákvæmilegt sé að afskrifa stóran hlut af skuldum Grikklands, eða allt að 80 prósent, til þess að bjarga landinu frá gjaldþroti.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×