Viðskipti erlent

Uppsveifla á Evrópumörkuðum

Töluverð uppsveifla hefur verið á helstu mörkuðum í Evrópu í morgun. FTSE vísitalan í London hefur hækkað um 1%, Dax vísitalan í Frankfurt um 2% og Cac 40 vísitalan í París um tæp 2%.

Þessar hækkanir koma í kjölfar uppsveiflu á Asíu mörkuðum í nótt þar sem Hang Seng vísitalan í Hong Kong hækkaði um 1,5% og Sjanghæ vísitalan um tæp 3%. Frídagur var á markaðinum í Tókýó. Markaðir í Bandaríkjunum enduðu einnig í gænum tölum í gærkvöldi.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×