Emil og félagar björguðu sér í lokin - 11 leikir í röð án taps Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 6. janúar 2012 19:00 Emil Hallfreðsson. Mynd/Daníel
Emil Hallfreðsson og félagar í Hellas Verona unnu dramatískan 2-1 sigur á FC Modena í ítölsku b-deildinni í kvöld en þetta var ellefti leikur Verona í röð án þess að tapa. Það stefndi þó í tap því liðið var undir þegar aðeins sex mínútur voru eftir af leiknum. Veronaliðið skoraði hinsvegar tvö mörk á síðustu fimm mínútum leiksins og tryggði sér mikilvægan sigur í baráttunni um sæti í ítölsku úrvalsdeildinni. Hellas Verona er nú í 5. sæti aðeins tveimur stigum á eftir Sassuolo sem er í 2. sætinu. Emil var í byrjunarliði Hellas Verona eins og í hinum 20 leikjum tímabilsins og spilaði allar 90 mínúturnar í fimmtánda sinn á leiktíðinni. Frakkinn Matthias Lepiller skoraði fyrra mark Verona á 85. mínútu og sigurmarkið skoraði Argentínumaðurinn Juan Ignacio Gomez Taleb þremur mínútum síðar. Giuseppe Greco hafði komið Modena yfir með marki úr vítaspyrnu á 35. mínútu leiksins. Hellas Verona hefur ekki tapað deildarleik síðan um miðjan október en liðið hefur unnið níu sinnum og gert tvö jafntefli í síðustu 11 leikjum sínum í ítölsku b-deildinni.
Ítalski boltinn Mest lesið Kinu Rochford sagður myrtur Körfubolti Noregur - England | Heldur norska ævintýrið áfram? Fótbolti Hissa á útspili Haalands Fótbolti Metið kolféll í Laugavegshlaupinu Sport Goðsögnin lætur Ancelotti heyra það: „Rífið samninginn hans strax“ Fótbolti Súrrealískt að spila golf með Trump Fótbolti Suður-Afríka syrgir landsliðsmann skömmu eftir HM Fótbolti Segir að það þurfi að skipta oftar um gervigras á Íslandi Fótbolti Tindastóll mætti ekki til leiks Íslenski boltinn Klopp samþykkir að taka við Þýskalandi Fótbolti Fleiri fréttir „Ástæðan fyrir því að það er talað um að hún sýni ekki nóg“ Héldu flugi eftir sigurinn á Íslandi og drottna yfir EM U19 Noregur - England | Heldur norska ævintýrið áfram? Hissa á útspili Haalands „Frakkar eiga að óttast okkur“ Óðinn óstöðvandi í stórsigri Messi ræður sjálfur hvort hann taki vítin Klopp samþykkir að taka við Þýskalandi Ken Bates látinn Suður-Afríka syrgir landsliðsmann skömmu eftir HM Tindastóll mætti ekki til leiks Súrrealískt að spila golf með Trump Með Haaland á toppi vinsældalistans Maður dagsins á HM: Tveimur árum of seinn á veitingastaðinn Eiga Englendingar kryptónítið hans Haaland uppi í erminni? Segir að það þurfi að skipta oftar um gervigras á Íslandi Sér ekki eftir því að hafa valið Marokkó fram yfir Frakkland Segir að enska liðið verði að „losa um handbremsuna“ gegn Noregi Klopp um flugferðina þegar hann ætlaði að fá Mbappé til Liverpool Svíar setja ríginn til hliðar og segjast halda með Noregi Goðsögnin lætur Ancelotti heyra það: „Rífið samninginn hans strax“ „Ég trúi þessu eiginlega ekki enn þá“ Tíu ÍR-ingar héldu Þrótturum frá toppsætinu „Fengum færi til þess að gera út um leikinn“ „Farinn að hljóma eins og rispuð plata“ Aftur var Arsenal-maðurinn Merino hetja Spánverja Lögregla kölluð til í fjölmiðlaaðstöðu enska landsliðsins Uppgjörið: Valur - Stjarnan 1-1 - Valskonur enduðu sigurgöngu Stjörnunnar Norsku treyjurnar uppseldar Sadio Mané hættur í landsliðinu en vill vera í kringum liðið áfram Sjá meira