Formúla 1

Ecclestone metur í næstu viku hvort mótshaldi í Barein verði aflýst

Bernie Ecclestone á mótssvæðinu í Suður Kóreu í fyrra.
Bernie Ecclestone á mótssvæðinu í Suður Kóreu í fyrra. Mynd: Getty Images/Mark Thompson
Bernie Ecclestone fylgist grannt með ástandinu í Barein, þar sem mótmælendur og lögregla tókust harkalega á í Manama, höfuðborg Barein í morgun. Fyrsta Formúlu 1 mót ársins á að fara fram í landinu þann 13. mars. Í frétt á autosport.com í dag segir að dauðsföll og meiðsli hafi orðið átökum í morgun milli mótmælenda og lögreglu. Í frétt á bbc.com í dag segir Ecclestone muni ákveða hvort mótinu verði aflýst í næstu viku. "Ef hlutirnir verða áfram eins og þeir eru í dag þá er svarið nei. Ef málin hafa ekki róast á miðviikudag, þá held ég að við verðum líklega að aflýsa", sagði Ecclestone í frétt bbc.com. Mótshaldi í GP 2 Asíu mótarröðinni sem átti að vera í Barein um helgina hefur verið frestað segir á autosport.com og að að Formúlu 1 lið hittist í Barcelona á föstudaginn til að ræða ástandið í Barein. Til stendur að æfa á brautinni 3.-6. mars og á það að vera lokæfing vetrarins, en eigi það að ganga eftir verða keppnislið að flytja bíla sína í byrjun næstu viku til Mið-Austurlanda.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×