Tónlist

Íslenskt á topp fimm

My Head Is an Animal er plata ársins 2011 að mati blaðamannsins. Fréttablaðið/stefán
My Head Is an Animal er plata ársins 2011 að mati blaðamannsins. Fréttablaðið/stefán
Hljómsveitirnar Of Monsters and Men og Apparat Organ Quartet eru á lista National Public Radio í Bandaríkjunum, NPR.org, yfir þá fimm flytjendur ársins 2011 sem fólk má ekki missa af.

„Á plötunni My Head Is an Animal er heillandi epískt þjóðlagapopp,“ segir blaðamaður KEXP sem tekur upp tónleika fyrir NPR, og líkir Of Monsters and Men við Seattle-sveitina The Head and the Heart og hina kanadísku Arcade Fire. Bætir hann við að platan hafi verið sú besta sem kom út á þessu ári.

Um nýjustu plötu Apparat Organ Quartet, segir hann: „Ef Kraftwerk hefði gefið út plötu árið 2011 hefði hún líklega hljómað eins og Pólýfónía. Fín til að hlusta á þegar maður keyrir eftir hraðbrautinni eða þegar maður flakkar um á netinu.“






Fleiri fréttir

Sjá meira


×