Með ofnæmi fyrir myndefninu 22. september 2011 10:30 Brynhildur Bolladóttir myndaði ketti sem urðu á vegi hennar í sumar. Fréttablaðið/Vilhelm
Brynhildur Bolladóttir, laganemi og listamaður, opnar sína fyrstu ljósmyndasýningu í Kaffistofu nemendagalleríi í kvöld. Sýningin stendur aðeins yfir þetta eina kvöld. Brynhildur hefur starfað sem bréfberi síðustu sumur og í gegnum starfið kynntist hún fjölda katta sem búsettir eru í Norðurmýrinni. Í upphafi fylgdust kettirnir með störfum Brynhildar úr fjarlægð en að lokum náði forvitnin yfirhöndinni og fóru þeir að fylgja henni eftir um hverfið. Í sumar ákvað Brynhildur að mynda kettina sem hún segir alla mjög ólíka. „Hverfið var fullt af köttum. Við eitt hús sátu alltaf þrír kettir saman á vegg og ég hélt mikið upp á þá.“ Brynhildur viðurkennir að það hafi verið erfitt að ná góðum myndum af köttunum og stundum hafi hún þurft að hlaupa á eftir myndefninu. Innt eftir því hvort hún sé mikil kattakona sjálf svarar Brynhildur neitandi. „Ég er með ofnæmi fyrir þeim. Mér finnst þeir afskaplega sætir en get lítið knúsað þá.“ Sýningin opnar klukkan 19 við Hverfisgötu 42. -sm
Menning Mest lesið „Ætlarðu að lifa eða ætlarðu að deyja?“ Lífið Hvað veistu um… London? Lífið Hættir með stefnumótaþættina vinsælu Lífið Fylltu Egilshöllina á forsýningu Hvar er draumurinn? Bíó og sjónvarp Gísli Marteinn syrgir þrjóskan Vesturbæing Lífið Survivor-keppandi missti fót og krefst 100 milljóna dala í skaðabætur Lífið Fastagestur lumaði á áttatíu ára gömlum grip Lífið Star Wars Zero Company: Herkænskan klikkar seint Leikjavísir Gleðibankinn fær nýjan búning í tilefni fertugsafmælis Gula miðans Lífið samstarf Er hægt að kaupa hamingju fyrir íslenskar krónur? Lífið Fleiri fréttir „Maður skynjaði eitthvað brothætt en það var hluti af sjarmanum“ Þórdís Zoëga sló í gegn í Kaupmannahöfn Svandís í ritstjórastól Kjánalegustu augnablikin í umræðunni um aðildarviðræður Rigningin stoppaði ekki stuðið hjá Yeoman Orgel Grensáskirkju fékk nýtt líf í Saurbæ Eitt myndband selji upp heilu lagerana Byrjaði sem þráhyggja fyrir rapplagi á spítala Sjá meira