Toshiba-tölvur eru vinsælastar hjá ELKO 11. ágúst 2011 11:00 Hjörvar Freyr Hjörvarsson með Toshiba-tölvuna sem hann mælir með fyrir skólafólk. Mynd/Stefán
ELKO er með mikið úrval af fartölvum, allt frá tíu tommu sem kosta 39.000 krónur upp í kraftmiklar vélar sem kosta allt að 300 til 500 þúsund. Hjörvar Freyr Hjörvarsson, vörustjóri tölvu- og símadeildar hjá ELKO, segist mæla með 13 tommu Toshiba vél fyrir skólafólk. „Hún er mjög nett og með DVD-drifi, ekki nema 1,4 kíló og batterísendingin er hátt í níu tímar svo hún endist vel daginn. Ef ég væri á leiðinni í skóla mundi ég taka þessa, ekki spurning,“ segir Hjörvar. Hjörvar segir að ódýru tölvurnar dugi í öll venjuleg heimilisstörf tölvunnar eins og ritvinnslu, internet og önnur léttari forrit. En sé fólk að nota þung forrit þá endist tölvan betur sé hún öflug. Hann líkir endingu tölva við bíla, ef mikið álag er á litlum bíl þá er slitið meira en ef bíllinn er kraftmikill. „Hjá okkur eru það Toshiba-tölvurnar sem eru vinsælastar. Það er líka góð reynsla af þeim, merkið er gott og endingin fín. Þær bila lítið og svo framvegis. En ef hún bilar þá er þjónustan hröð. Það tekur yfirleitt innan við viku að gera við þær,“ segir Hjörvar og tekur fram að ELKO sé í samstarfi við verkstæði sem sér um tölvurnar þeirra. Tveggja ára ábyrgð er á öllum tölvum frá ELKO sem gildir um gjörvalla Evrópu. En að auki er boðið upp á tryggingar á vélarnar. „Ef þú verður fyrir óhappi þá færðu það bætt. Í þessum tryggingum er engin eigin ábyrgð og afföll og margir nýta sér þennan kost. Tryggingin tekur á víðu sviði, ef þú verður fyrir skyndilegu ófyrirséðu óhappi þá færðu það bætt. Þá er gert við vélina eða þú færð aðra sambærilega í staðinn,“ segir Hjörvar og telur þetta vera sérstaklega sniðugt fyrir þá sem vilja eiga eina vél í mörg ár. „Þá er gott að henda einni tryggingu á það, þá ertu nokkuð öruggur,“ segir Hjörvar. Hjörvar segir að miklar framfarir hafi orðið á endingu battería undanfarið eitt og hálft ár. „Í dag eru þetta almennt fimm til sex tímar en voru fyrir stuttu þrír tímar. Það eru að koma nýir örgjörvar sem eyða miklu minna rafmagni og skjáir líka,“ útskýrir Hjörvar og bendir fólki á að það sé gott fyrir líftíma battería að taka þau úr tölvunum ef tölvan er mikið heima og alltaf í sambandi. „Þá ertu ekki að hlaða upp á nýtt og nýtt. Ef maður gerir það myndast ákveðin mótstaða í rafhlöðunni,“ segir Hjörvar.
Mest lesið Fylgja fordæmi Íslands og fara gegn vísindunum Viðskipti erlent Icelandair ræðir um kaup á dreggjum Play Viðskipti innlent Gengið í Icelandair rýkur upp í kjölfar fregna af tilboði í Fly Play Europe Viðskipti innlent Samkaup eykur hlut sinn í Kjötkompaní Viðskipti innlent Skattalækkanir vinni beinlínis gegn Seðlabankanum Neytendur Forsvarsmenn Claude láku óvart sínum eigin frumkóða Viðskipti erlent Göngugreining getur leyst stoðkerfisverki Samstarf Fyrirhugað flugfélag vekur athygli en engar leyfisumsóknir liggja fyrir Viðskipti innlent Ólafur Björn til liðs við Jónsbók Viðskipti innlent Ríteil Kids hættir rekstri Viðskipti innlent Fleiri fréttir Göngugreining getur leyst stoðkerfisverki Armar byggir á traustum grunni og horfir til framtíðar Orkan fyrst eldsneytisfyrirtækja á Íslandi með umhverfisvottun fyrir allar stöðvar Dagur verkfræðinnar: Vilja vekja áhuga ungs fólks á tækni- og raungreinum BYKO og Tækniskólinn sameina krafta sína á Verk og vit Auðvelda Íslendingum að skilja ekkert eftir Greiðsluáskorun Ein heild – sveigjanlegar lausnir í byggingariðnaði Leitin að iðnaðarmanni ársins er hafin Verða af hundruðum þúsunda á ári þegar akstursdagbókin gleymist Orkuveitan jafnar stöðu foreldra á vinnumarkaði Orion Tannlæknastofa kynnir starfsemi sína í Budapest og Reykjavík - Hringferð í kringum landið í Apríl Kulnun, kostnaður og gervigreind: Hvað gera stjórnendur nú? Umferðaröryggi í brennidepli á Forvarnaráðstefnu VÍS Í hvað eru peningarnir þínir að fara? Sjá meira
Orion Tannlæknastofa kynnir starfsemi sína í Budapest og Reykjavík - Hringferð í kringum landið í Apríl