Golf

Tinna hóf titilvörnina á vallarmeti

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Tinna Jóhannsdóttir lék vel í gær.
Tinna Jóhannsdóttir lék vel í gær. Mynd/Daníel
Tinna Jóhannsdóttir úr Golfklúbbnum Kili er í fyrsta sæti að loknum fyrsta degi á Íslandsmótinu í höggleik í kvennaflokki. Tinna lék holurnar átján á 69 höggum eða þremur höggum undir pari Hólmsvallar og setti vallarmet. Tinna lauk hringnum á fugli á átjándu holunni.

„Þessi seinasta er „birdie“-hola. Ég hélt að upphafshöggið hefði farið í tjörnina vinstra megin. Ég var heppin að hann tórði á landi. Ég tók því fegins hendi og fékk fugl,“ sagði Tinna sem var skiljanlega ánægð með spilamennsku sína í dag.

Tinna segist að röff-leysið hafi hentað henni vel í gær. Hún hafi bætt högglengd sína undanfarið en sé þó venjulega á braut.

„Það gekk ekki alveg upp í dag. Upphafshöggin fóru út um allt. Það gerist stundum þegar það er enginn fókus á braut. Maður bara lúðrar þessu áfram,“ sagði Tinna. Henni gekk líka vel í stutta spilinu.

„Ég fékk fugl á öllum par fimm holunum. Þar var ég að slá fleygjárnshöggin mjög nálægt pinna,“ sagði Tinna.

Eygló Myrra Óskarsdóttir úr Golfklúbbnum Oddi er í öðru sæti á tveimur höggum undir pari og jafnaði þar með fyrra vallarmet Hólmsvallar.

Eygló Myrra fór illa af stað á Hólmsvelli í gær og spilaði aðra holu vallarins á þremur höggum yfir pari.

„Ég var komin fjóra yfir eftir þrjár holur þannig að þetta leit ekkert voðalega vel út. En þetta eru fjórir hringir og ég búin með þrjár holur. Nóg af holum eftir. Ég sá að strákarnir voru að spila á sjö undir og fá fullt af fuglum. Það kom mér í gang að hugsa um þá,“ sagði Eygló.

Eygló segist ekki hafa séð svona skor hjá sér lengi. Hún sé búin að vinna vel í vetur og sumar en árangurinn látið á sér standa, þar til nú.

„Já, ég var að jafna besta hringinn minn í tvö ár. Ég er búin að bíða eftir þessu lengi,“ sagði Eygló sem segir fólk í kringum sig hafa hvatt sig til að sýna þolinmæði. Vinnan myndi skila árangri á endanum.

Eygló er afar ánægð með ástand Hólmsvallar og tekur undir með Tinnu varðandi skort á röffi.

„Það hentar mér mjög vel. Maður getur slegið út um allt og verið í góðum málum. Flatirnar eru ótrúlega góðar og völlurinn í toppstandi.“

Signý Arnórsdóttir úr Kili og Valdís Þóra Jónsdóttir úr Leyni spiluðu á einu höggi undir pari og eru jafnar í þriðja sæti.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×