Formúla 1

27.39% hlutur í Williams seldur á opnum hlutabréfamarkaði

Frank Williams, aðaleigandi Williams og Sam Michaels sem er stjórnandi liðsins á mótsstað.
Frank Williams, aðaleigandi Williams og Sam Michaels sem er stjórnandi liðsins á mótsstað. Mynd: Getty Images
Williams liðið hefur opnað fyrir þann möguleika að almenningur geti keypt hlut í liðinu á hlutabréfamarkaðnum í Frankfurt og verða 27.39% í boði. Það er svissneskur banki sem mú sjá um aðgerðina. Frank Williams verður eftir sem áður meirihlutaeigandi í liðinu, sem hefur verið starfrækt síðan 1977. Williams fer formlega á markað 2. mars, en undirbúningur er þegar farinn í gang. Williams liðið hefur unnið 9 meistaratitla bílasmsiða og sjö titla ökumanna, en Rubens Barrichello frá Brasilíu og nýliðinn Pastor Maldonado frá Venúsúela eru ökumenn liðsins, en Maldonado er varð meistari í GP2 mótaröðinni 2010. Williams liðið prófaði nýjan keppnisbíl í vikunni og verður meðal 12 keppnisliða í Formúlu 1 á þessu ári, en með því að selja hluti í liðinu vill Frank tryggja áframhaldandi rekstur liðsins til langframa. Frank hefur verið bundinn hjólastól um langt skeið eftir að hann meiddist í umferðaróhappi. Engu að síður mætir hann á mótssvæði og rekur keppnisliðið af elju.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×