Viðskipti erlent

Heimsmarkaðsverð á olíu fer hækkandi

Heimsmarkaðsverð á olíu hefur farið hækkandi undanfarna daga. Brentolían er komin í yfir 110 dollara á tunnuna og bandaríska léttolían yfir 100 dollara. Hefur olíuverðið ekki verið hærra síðan um miðjan síðasta mánuð.

Ekki er gott að sjá ástæður fyrir því að olíuverðið hækki núna þar sem olíu- og bensínbirgðir í Bandaríkjunum voru meiri í vikunni en áætlað hafði verið. Undir eðlilegum kringumstæðum leiðar slíkar upplýsingar til lækkunnar á olíuverðinu.

Sennilegasta skýringin á olíuverðhækkuninni er að fjárfestar sæki í olíu og aðrar hrávörur í augnablikinu vegna stöðunnar á fjármálamörkuðunum. Þannig hafa hrávörur á borð við kopar, gull og korn hækkað í vikunni.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×