Viðskipti erlent

Tæknifyrirtæki uggandi yfir hugsanlegri löggjöf

Verði frumvarpið samþykkt þarf Google að sía út vefsíður sem taldnar eru geyma efni sem brýtur á höfundarrétti.
Verði frumvarpið samþykkt þarf Google að sía út vefsíður sem taldnar eru geyma efni sem brýtur á höfundarrétti. mynd/AFP
Tæknifyrirtæki í Bandaríkjunum eru afar ósátt með lagafrumvarp sem miðar að því að berjast gegn höfundarréttarbrotum á internetinu. Fyrirtækin segja frumvarpið bjóða upp á ólögmæta ritskoðun og að með löggjöfinni fá yfirvöld í Bandaríkjunum óhóflega mikil yfirráð yfir vefsíðum internetsins.

Líklega verður kosið um frumvarpið í næsta mánuði.

Verði það samþykkt fá yfirvöld í Bandaríkjunum vald til að loka á allar þær vefsíður sem taldnar eru geyma efni sem brýtur á höfundarrétti. Að auki geta yfirvöld lögsótt fyrirtæki eða samtök sem stand að baki vefsíðunum.

Margar stofnanir og samtök í Bandaríkjunum hafa lýst yfir stuðningi sínum við frumvarpið, þar á meðal eru Kvikmyndasamtök Bandaríkjanna, Bandalag tónlistarmanna í Bandaríkjunum og Leikstjórnarsamtök Bandaríkjanna. Einnig hafa lyfjafyrirtæki stutt frumvarpið en verði það samþykkt verður hægt að loka á vefapótek sem bjóða ódýrari lyf.

Þó eru ekki allir ánægðir með frumvarpið. Mörg tæknifyrirtæki í Bandaríkjunum hafa lýst yfir áhyggjum sínum vegna löggjafarinnar. Í síðustu viku birtu AOL, eBay, Facebook, Google og Twitter heilsíðu auglýsingu í The New York Times þar sem frumvarpið var gagnrýnt.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×