Viðskipti erlent

Búast við snjallsíma frá Amazon

Jeff Bezos, stjórnarformaður vefverslunarinnar Amazon.
Jeff Bezos, stjórnarformaður vefverslunarinnar Amazon. mynd/AFP
Þó svo að Kindle Fire, nýjasta spjaldtölva vefverslunarinnar Amazon, hafi fengið misjafna dóma frá gagnrýnendum þá hafa neytendur tekið tölvunni opnum örmum. Talið er að Amazon muni selja um fimm milljón eintök fyrir jól.

Mikil hrifning neytenda er talin liggja í verðlagningu tölvunnar en hún kostar rúmar 20.000 krónur íslenskar. Talið er að Amazon tapi þremur dollurum á hvert selt eintak af Kindle Fire.

Leynivopn Kindle Fire er tenging tölvunnar við afþreyingarþjónustu Amazon. Sú þjónustu er þó aðeins í boði fyrir notendur í Bandaríkjunum.

Á næsta ári er svo talið að Amazon muni kynna snjallsíma. Samkvæmt sérfræðingum hjá Citigroup er snjallsími frá Amazon rökrétt skref vefverslunarinnar í baráttunni við Apple.

Talið er að snjallsíminn verði mun ódýrari en vinsælustu snjallsímarnir í dag, iPhone 4S og Samsung Galaxy S II.

Fátt er vitað um snjallsímann frá Amazon er samkvæmt heimildum Citigroup mun síminn hafa 4 tommu skjá og átta megapixla myndavél.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×