Viðskipti erlent

Apple gefur út uppfærslu fyrir iOS 5

iPhone 4S hefur notið gríðarlegra vinsælda en notendur hafa þó kvartað yfir rafhlöðu símans.
iPhone 4S hefur notið gríðarlegra vinsælda en notendur hafa þó kvartað yfir rafhlöðu símans. mynd/AFP
Tölvurisinn Apple hefur gefið út uppfærslu fyrir iOS 5. Stýrikerfið er það nýjasta sem Apple framleiddi fyrir iPhone 4S og iPad spjaldtölvuna.

Notendur nýjasta iPhone snjallsímans hafa kvartað yfir stuttum líftíma rafhlöðunnar í símanum. Í ljós kom að vandamálið væri í stýrikerfinu.

Stuttu eftir að notendur lýstu yfir óánægju sinni hóf Apple rannsókn á málinu.

Í dag gaf svo fyrirtækið út uppfærsluna iOS 5.0.1 en hún á að taka á rafhlöðu vandamálinu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×