Viðskipti erlent

Facebook nær að stöðva klámbylgjuna

Mynd/Getty
Forsvarsmenn Facebook samskiptasíðunnar segja að þeim hafi tekist að stöðva flóð klámmynda sem pirrað hefur notendur samskiptamiðilsins síðustu daga. Þúsundir Facebook síða urðu fyrir árásum tölvuþrjóta og birtust svæsnar klámmyndir á síðum fólks fyrirvaralaust.

Alls nota um 800 milljónir manna um allan heim Facebook. Talsmenn Facebook segjast vita hverjir stóðu að baki árásinni en það hefur ekki enn verið gert opinbert.

Þó er ekki um að ræða töluþrjótahópinn Anonymous sem á dögunum var sagður vinna að því að eyðileggja samskiptamðilinn.


Tengdar fréttir

Klám flæðir yfir Facebook

Ný veira herjar nú á Facebook notendur um allan heim sem lýsir sér þannig að á Facebook síðum fólks birtast klámmyndir af svæsnustu sort. Vandamálið hefur verið að gera vart við sig í meira mæli undanfarna daga og nú er svo komið að notendur eru orðnir vægast sagt pirraðir. Það sem verra er, þá virkar vírusinn á þann hátt að svo virðist sem vinur þinn eða vinkona á Facebook sé að „pósta“ myndunum þrátt fyrir að vera alsaklaus af slíkri hegðun.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×