Eftir lokin frumsýnt í Tjarnarbíói 28. október 2011 16:45
Veggspjald sýningarinnar en Anna Rakel Róbertsdóttir sér um grafíska hönnun hennar. Á morgun verður leikritið Eftir lokin eftir Dennis Kelly frumsýnt í Tjarnarbíói. Eftir lokin segir frá tveimur einstaklingum, Markúsi og Lísu, vinnufélögum sem eru innilokuð í sprengjubyrgi eftir kjarnorkuárás. Samskipti þeirra einkennast af togstreitu og spennu og ástandið er eldfimt. Sjá má stiklu fyrir sýninguna í meðfylgjandi myndskeiði. Leikararnir Sveinn Ólafur Gunnarsson og Lilja Nótt Þórarinsdóttir fara með hlutverkin í sýningunni en henni er leikstýrt af Stefáni Halli Stefánssyni. Stefán og Lilja þýddu verkið. Gísli Galdur Þorgeirsson sér um tónlist og Brynja Björnsdóttir um leikmynd og búninga. Leikfélagið SuðSuðVestur setur sýninguna upp í samstarfi við Tjarnarbíó. Höfundurinn Dennis Kelly er eitt fremsta núttímaleikskáld Breta en nú síðast var verk hans Elsku Barn sýnt við góðar undirtektir í Borgarleikhúsinu. Leikrit hans bera sterk höfundareinkenni og taka á eldfimum og viðkvæmum málefnum. Nánari upplýsingar er að finna á vefnum tjarnarbio.is en miðasala fer einnig fram á midi.is.
Menning Mest lesið „Ætlarðu að lifa eða ætlarðu að deyja?“ Lífið Hvað veistu um… London? Lífið Hættir með stefnumótaþættina vinsælu Lífið Fylltu Egilshöllina á forsýningu Hvar er draumurinn? Bíó og sjónvarp Survivor-keppandi missti fót og krefst 100 milljóna dala í skaðabætur Lífið Fastagestur lumaði á áttatíu ára gömlum grip Lífið Star Wars Zero Company: Herkænskan klikkar seint Leikjavísir Er hægt að kaupa hamingju fyrir íslenskar krónur? Lífið Jörðin undir fótum okkar framlag Íslands til Óskarsverðlauna Bíó og sjónvarp „Maður skynjaði eitthvað brothætt en það var hluti af sjarmanum“ Menning Fleiri fréttir „Maður skynjaði eitthvað brothætt en það var hluti af sjarmanum“ Þórdís Zoëga sló í gegn í Kaupmannahöfn Svandís í ritstjórastól Kjánalegustu augnablikin í umræðunni um aðildarviðræður Rigningin stoppaði ekki stuðið hjá Yeoman Orgel Grensáskirkju fékk nýtt líf í Saurbæ Eitt myndband selji upp heilu lagerana Byrjaði sem þráhyggja fyrir rapplagi á spítala Sjá meira