Golf

Axel og Alfreð jafnir eftir annan daginn - fjórtán kylfingar undir pari

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Alfreð Brynjar Kristinsson náði efsta sætinu með því að fá örn á átjándu holunni.
Alfreð Brynjar Kristinsson náði efsta sætinu með því að fá örn á átjándu holunni. Mynd/Golfsamband Íslands.
Axel Bóasson úr Keili og Alfreð Brynjar Kristinsson úr GKG eru efstir og jafnir eftir tvo fyrstu dagana á Íslandsmótinu í höggleik sem fram fer á Hólmsvelli í Leiru. Axel var með forystuna og átti eitt högg á Alfreð eftir fyrsta daginn. Þeir hafa nú báðir leikið fyrstu 36 holurnar á átta höggum undir pari. Það eru margir að spila vel enda fjórtán kylfingar að spila fyrstu tvo dagana undir pari.

Axel byrjaði ekki vel því hann tapaði þremur höggum á fyrstu átta holunum en þá komst hann aftur í gang og fékk fimm fugla á síðustu tíu holunum. Alfreð byrjaði vel og var lengi einn í forystu í dag. Hann fékk skramba á þrettándu sem virtist ætla að kosta hann efsta sætið en Alfreð fékk hinsvegar örn á 18. holunni og náði að jafna við Axel sem fékk fugl á lokaholunni.

Ólafur Már Sigurðsson úr GK er í 3. sætinu tveimur höggum á eftir Axel og Alfreð. Ólafur Már lék manna best í dag en hann fór hringinn á fimm höggum undir pari og er á sex höggum undir eftir tvo daga. Ólafur Már fékk 7 fugla á holunum 18 í dag þar af þrjá þeirra á síðustu fimm holunum.

Heiðar Davíð Bragason úr GÓ er í 4. sæti á fimm höggum undir pari en hann lék á tveimur höggum undir pari í dag. Þórður Rafn Gissurarson, Hlynur Geir Hjartarson, Guðjón Henning Hilmarsson og Kristján Þór Einarsson eru síðan allir í 5. til 8. sæti á fjórum höggum undir pari.

Staðan eftir tvo hringi hjá körlunum:

1. Axel Bóasson, GK  -8

1. Alfreð Brynjar Kristinsson, GKG -8

2. Ólafur Már Sigurðsson, GR -6

4. Heiðar Davíð Bragason, GÓ -5

5. Þórður Rafn Gissurarson, GR -4

5. Hlynur Geir Hjartarson, GOS -4

5. Guðjón Henning Hilmarsson, GKG  -4

5. Kristján Þór Einarsson, GKJ -4

9. Arnar Sigurbjörnsson, GKJ -3

10. Sigmundur Einar Másson, GKG -2

10. Helgi Birkir Þórisson, GSE -2




Fleiri fréttir

Sjá meira


×