Golf

Axel með þriggja högga forskot fyrir lokadaginn

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Axel Bóasson.
Axel Bóasson.
Axel Bóasson endurheimti forystuna á Íslandsmótinu í golfi í dag þegar þriðji hringurinn fór fram í hávaðaroki á Hólmsvelli í Leiru.

Axel lék á fjórum höggum yfir pari og er samtals á fjórum höggum undir pari. Hann á þrjú högg á Guðjón Henning Hilmarsson sem er á einu höggi undir pari samtals eftir að hafa leikið á þrem höggum yfir pari í dag.

Alfreð Brynjar Kristinsson leiddi fyrir daginn í dag en gekk ekki nógu vel í rokinu. Hann spilaði á átta höggum yfir pari og er samtals á parinu.

Heiðar Davíð Bragason er svo höggi á eftir Alfreð og fimm höggum á eftir Axel.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×