Golf

Lokadagurinn í Leirunni loksins hafinn

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Hlynur Geir og félagar voru veðurbarðir í gær.
Hlynur Geir og félagar voru veðurbarðir í gær. mynd/gsimyndir.net
Ræsingu á lokadeginum á Íslandsmótinu í höggleik var frestað í tvígang í morgun vegna veðurs. Kylfingar fóru ekki af stað fyrr en í hádeginu en í fyrstu var frestað til 11.00.

Ræst var út á 1. og 10. teig. Samkvæmt veðurspá á að lægja eftir því sem líður á daginn og það hjálpar kylfingum eðlilega.

Aðstæður voru mjög erfiðar í gær og sást það best í miklum sveiflum á skori.

Axel Bóasson og Ólafía Þórunn Kristinsdóttir leiða fyrir lokadaginn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×