Góð veiði á Arnarvatns- og Skagaheiði Karl Lúðvíksson skrifar 18. júlí 2011 10:27 Flott veiði á Arnarvatnsheiði
Við heyrðum í nokkrum félögum sem voru að koma úr helgarferð þar sem einn dagur var tekinn á Arnarvatnsheiði og annar á Skagaheiði. Þeir lögðu af stað eldsnemma frá Blönduós á laugardagsmorgninum og byrjuðu á Arnarvatnsheiðinni. Það er skemmst frá því að segja en heildarveiðin á 4 stangir eftir daginn var um 80 silungar og þeir sögðu að þeir hefðu getað veitt mun meira en menn voru bara komnir með nóg. Mikið að fiski er í sumum vötnunum og hann er feitur og flottur þessa dagana og virðist hafa nóg æti. Á sunnudeginum var farið uppá Skagaheiði og þar var laugardagurinn toppaður. 120 silungar á land og þar af nokkrir 4-6 punda! Það var að sögn mikið líf í flestum vötnunum sem voru prófuð en menn velja sér 1-3 vötn til að eyða mestum tíma í enda fer mikill tími í að keyra á milli vatnana. Það er allt lífríkið nokkuð á eftir áætlun miðað við t.d. árið í fyrra þannig að það er ennþá frábær tími framundan í hálendisveiðinni á landinu.
Stangveiði Mest lesið Skemmtilegur tími framundan í Varmá Veiði Veiðisvæði Skálholts komin í sölu Veiði 75 ára afmæli SVFR Veiði Góður lokasprettur í Jöklu Veiði Ótrúlegar vikutölur úr laxveiðiánum Veiði Ein af flugunum sem ekki má gleyma Veiði Fleiri laxveiðiár að opna með góðum aflabrögðum Veiði Selá og Hofsá að eiga gott veiðitímabil Veiði Urriðafoss opnar 1. júní fyrir veiði Veiði Nýtt Sportveiðiblað er komið út Veiði