Golf

Kvennalandsliðið í golfi hefur keppni á EM í Austurríki

Sigurður Elvar Þórólfsson skrifar
Íslenska kvennalandsliðið í golfi hefur leik á morgun á EM sem fram fer í Austurríki. Frá vinstri: Guðrún Brá Björgvinsdóttir, Signý Arnórsdóttir, Ólafía Þórunn Kristinsdóttir, Tinna Jóhannsdóttir, Valdís Þóra Jónsdóttir og Sunna Víðisdóttir.
Íslenska kvennalandsliðið í golfi hefur leik á morgun á EM sem fram fer í Austurríki. Frá vinstri: Guðrún Brá Björgvinsdóttir, Signý Arnórsdóttir, Ólafía Þórunn Kristinsdóttir, Tinna Jóhannsdóttir, Valdís Þóra Jónsdóttir og Sunna Víðisdóttir. Mynd/GSÍ
Íslenska kvennalandsliðið í golfi hefur leik á morgun á EM sem fram fer í Austurríki. Alls hafa 20 þjóðir keppnisrétt á þessu móti og fyrstu tvo keppnisdagana er keppt í höggleik. Að því loknum er þjóðunum skipt í þrjá riðla eftir skori – og holukeppni ræður úrslitum um lokastöðuna á síðustu tveimur keppnisdögunum.

Í höggleiknum telja fimm bestu skorin af alls sex hjá hverju liði. Í A-riðli leika síðan þjóðirnar sem enda í 1.-8. sæti í höggleiknum, í B-riðli leika þjóðirnar sem enda í 9.-16. sæti og í C-riðli þær sem enda í 17.-20. sæti.

Fyrir hönd Íslands leika: Signý Arnórsdóttir (GK), Tinna Jóhansdóttir (GK), Guðrún Brá Björgvinsdóttir (GK), Sunna Víðisdóttir (GR), Ólafía Þórunn Kristinsdóttir (GR) og Valdís Þóra Jónsdóttir (GL). Liðsstjóri er Steinunn Eggertsdóttir og þjálfari er Karl Ómar Karlsson.

Þessar þjóðir taka þátt á EM:

Austurríki

Belgía

Tékkland

Danmörk

England

Finnland

Frakkland

Þýskaland

Ísland

Írland

Ítalía

Holland

Noregur

Rússland

Skotland

Slóvenía

Spánn

Svíþjóð

Sviss

Wales




Fleiri fréttir

Sjá meira


×