Golf

Annað stigamót ársins fer fram í Eyjum um helgina

Arnar Snær Hákonarson varð annar á fyrsta stigamótinu sem fram fór á Akranesi.
Arnar Snær Hákonarson varð annar á fyrsta stigamótinu sem fram fór á Akranesi. Mynd/golf.is
Annað stigamót ársins á Eimskipsmótaröðinni í golfi fer fram í Vestmannaeyjum um helgina og verða leiknar 54 holur að þessu sinni. Aðeins 83 keppendur eru skráðir til leiks og sigurvegararnir frá fyrsta stigamóti ársins sem fram fór á Garðavelli á Akranesi eru báðir fjarverandi.

Vestmannaeyjavöllur er í fínu ástandi miðað við árstíma og hafa starfsmenn vallarins unnið hörðum höndum að því að gera völlinn enn betri á undanförnum vikum.

Axel Bóasson úr GK sem sigraði með yfirburðum á fyrsta stigamótinu keppir í Danmörku um helgina ásamt Guðmundi Ágústi Kristjánssyni úr GR. Sigmundur Einar Másson úr GKG keppir á atvinnumannamóti í Svíþjóð og Ólafur Björn Loftsson úr NK er fjarverandi en hann undirbýr sig fyrir opna breska áhugamannamótið sem fram fer í næstu viku.

Alls eru 65 keppendur skráðir til leiks í karlaflokki og 18 í kvennaflokknum. Leiknar verða 36 holur á morgun laugardag og 18 holur á sunnudag.

Þriðja mótið á Eimskipsmótaröðinni fer fram á Hvaleyrarholtsvelli í Hafnafirði helgina 24.-26. Júní þar sem leiknir verða 3 hringi á þremur dögum.

Stigahæstir í karlaflokki á Eimskipsmótaröðinni:

1. Axel Bóasson, GK 1500.00 stig

2. Arnar Snær Hákonarson, GR 1200.00 stig

3. Stefán Már Stefánsson, GR 1065.00 stig

4. Örvar Samúelsson, GA 907.50 stig

5. Helgi Birkir Þórisson, GSE 907.50 stig

6. Haraldur Franklín Magnús, GR 787.50 stig

7. Sigurjón Arnarsson, GR 637.50 stig

8. Sigmundur Einar Másson, GKG 637.50

9. Hlynur Geir Hjartarson, GOS 637.50 stig

10. Kristján Þór Einarsson, GKj.                 517.50 stig

11. Örn Ævar Hjartarson, GS 517.50 stig

Stigahæstar í kvennaflokki á Eimskipsmótaröðinni:

1. Guðrún Brá Björgvinsdóttir,GK 1500.00 stig

2. Signý Arnórsdóttir, GK 1200.00 stig

3. Valdís Þóra Jónsdóttir, GL 1008.75 stig

4. Heiða Guðnadóttir, GKj 1008.75 stig

5. Nína Björk Geirsdóttir, GKj 862.50 stig

6. Sunna Víðisdóttir, GR 787.50 stig

7 Ólafía Þórunn Kristinsdóttir, GR 712.50 stig

8. Ragnhildur Sigurðardóttir, GR 600.00 stig

9. Ingunn Gunnarsdóttir, GKG 600.00 stig

10.Ragna Björk Ólafsdóttir, GK 532.50 stig




Fleiri fréttir

Sjá meira


×