Viðskipti erlent

Sá hæfasti stýri AGS

Dominique Strauss-Kahn sagði af sér í síðustu viku. Hér sést hann í réttarsal.
Dominique Strauss-Kahn sagði af sér í síðustu viku. Hér sést hann í réttarsal. Mynd/AP
Fjármálaráðherrar Ástralíu og Suður-Afríku telja mikilvægt að næsti framkvæmdastjóri Alþjóðagjaldeyrissjóðins verði skipaður út frá hæfniviðmiðum en ekki þjóðerni. Frá því að sjóðurinn var stofnaður eftir síðari heimsstyrjöldina hefur Evrópumaður alltaf gegnt embætti framkvæmdastjóra. Það telja ráðherrarnir afar óeðlilegt og leggja á áherslu á að staða framkvæmdastjóra Alþjóðagjaldeyrissjóðsins sé ekki einkamál Evrópu.

Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn byrjar á morgun að taka við tilnefningum að nýjum yfirmanni sjóðsins, eftirmanni Dominique Strauss-Kahn sem sagði af sér í síðustu viku eftir að herbergisþerna á hóteli í New York kærði hann fyrir nauðgun. Mörg Evrópuríki sækja fast að Evrópumaður taki við af Strauss-Kahn. Christine Lagarde, fjármálaráðherra Frakklands, hefur verið nefnt í því samhengi en hún yrði fyrsta konan sem gegndi embættinu. Angela Merkel, kanslari Þýskalands, og George Osborne, fjármálaráðherra Bretlands vilja að Lagarde taki við forystu AGS.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×