Voru við veiðar í Tungulæk þegar gosið hófst Karl Lúðvíksson skrifar 25. maí 2011 10:22 Fallegur dagur við Tungulæk á laugardaginn
Félagarnir Ragnar Jónsson, Sigurður Þorsteinsson, Jóhannes Jóhannesson, Ólafur Stefánsson, Jón Vignir Steingrímsson og Steinn Steinnson voru við veiðar í Tungulæk á laugardaginn þegar gosið hófst.Við Tungulæk nokkrum tímum fyrir gos á laugardaginÞað er óhætt að segja að það er gífurlega fallegt við Tungulækinn á góðum degi. Veiðin gekk vel og voru komnir um 15 flottir birtingar á land þegar gosið hófst um klukkan 18:00 á laugardagseftirmiðdeginum.Egill, Steinn og goðsögnin Boggi TonaGosið gerði það að verkum að allri veiði var sjálfhætt og ekki nokkur leið að gera neitt nema taka saman veiðigræjurnar og komast undan öskufallinu sem var líklega einna mest þarna á öllu svæðinu.Allir flúnir inn á hádegi sunnudag. Myrkur úti!Hér eru allir komnir inn og ekkert annað að gera en að sjá hvort það sé einhver möguleiki að komast af svæðinu. Klukkan 12:00 var skyggnið innan við meter og öskufallið alveg gífurlegt. Maður á kannski ekki von á þessu þegar maður skellir sér í veiði. En gosinu er lokið samkvæmt fréttum í dag og veit það á gott fyrir heimamenn og veiðimenn. Svæðið verður vonandi fljótt að jafna sig svo að líf komist í eðlilegar skorður sem fyrst. En það er nokkuð víst að þessum veiðitúr gleyma félagarnir seint.
Stangveiði Mest lesið Góð bleikjuveiði við Ásgarð Veiði Bleikjuveiðin fer rólega af stað Veiði Ársskammtur étinn á þremur dögum Veiði Veiðivísir orðinn sýnilegri og kominn á Facebook Veiði Gersemar á bókamörkuðum Veiði Mikil hrognanotkun í Elliðavatni þrátt fyrir bann Veiði Guðrún er staðalbúnaður í hverri veiðiferð Veiði Svona lítur 123 sm stórlax út í mynd Veiði Góð uppskrift að bleikju Veiði Hvar má ég veiða rjúpu? Veiði