Tónlist

Vasadiskó - 3. þáttur - handritið

Birgir Örn Steinarsson skrifar
intro & talkback lag - NEU! - Hallogallo

- kynning

- frídagur verkalýðsins - hér sit ég samt - og stóð ég í nótt á bar11

- dagskrá þáttarins etc - Kynning á nýjum plötum Tune-Yards og Kurt Vile. Krummi mætir í Selebb Shuffle. - nýtt frá Mammút - Legend - Sölva Blöndal…

- tónlistarfrétt vikunnar sem leið hlýtur að vera endurkoma Quarashi. RÚV fréttirnar/Kastljós/Auddi&Sveppi og fleira. Er að misnota aðstöðu mína þar sem ég er að hjálpa til… en ætla að misnota aðstöðu mína með stæl og spila Quarashi lag sem hefur aldrei fengið útgáfu..

lag1: Quarashi Dive In (studio version with strings)


- hér í boði tónlist.is

- nýtt og áhugavert á þeim vef þessa vikuna - Biggi Hilmarsson úr Ampop - Cinametic Songs og svo Emmsjé Gauti.

- Emmsjé Gauti er nýbúinn að gefa út sína fyrstu plötu - BARA ÉG - kemur fram að hann hafi verið að í um 10 ár og hafi komið fram á óteljandi tónleikum - vonandi verður hann meira pródúktífur í framtíðinni… hljómsveitir eiga langa ferla þess á milli sem hann hreyfir sig…

- Rósa Sometime/Feldberg. Er líklegast hætt í Sometime? Danni eitthvað að gaufast í Barcelona.

lag2: Emmsjé Gauti - Dusta rykið


- gestur minn á eftir í Selebb Shuffle er Krummi Björgvins

- hann kom fram í vikunni - síðastliðinn mánudag á Bakkus - ásamt nýrri sveit sinni Legend - teknópopp sem er að fara vel ofan í menn. Hann er að þróa með sér sviðsframkomu sem hann hefur ekki getað gert með Mínus - búningar, sértilgerðir míkrafónstandar og alls kyns gimmik. Hann segir okkur frá því á eftir.

lag3: Legend - Sister


Umfjöllun: Tune-Yards: W H O K I L L

lag4: Tune-Yards - My Country


- er einyrkja sveit bandarísku listaspírunnar Merrill Garbus. Hún kemur frá New England og hefur sérkennilega rödd - A-Sexual - sem vegur salt á milli karlmanns- og kvenmannsraddar.

- Önnur platan - sú fyrri hét Bird-Brains og kom út 2009.

- Merrill kemur ein fram á tónleikum og styðst við loop-pedal. Býr til grunn á staðnum - leggur svo nýtt element ofan á hvert annað - eins og tónlistarlegt lasagna. Styðst við alls kyns hljóðfæri ukuleilei, bít-box, rafmagnsbassa, saxafón og alls konar.

- fyrsta platan var þannig hljóðrituð læf. Og í fyrstu aðeins gefin út á kasettu. Fékk svo endurútgáfu á viníl og stafrænt síðar það árið.

lag5: Tune-Yards - Gangsta


- þessi plata kom út í þarsíðustu viku. Fyrsti singúllinn var lagið Bizness sem við spiluðu hér í síðasta þætti.

- að þessu sinni spilar bassaleikarinn Nate Brenner með - og útkoman er hreint út sagt stórkostleg.

- platan fór í 135. sæti á breska sölulistanum - sem hlýtur að teljast ágætt miðað við svona listræna afurð.

- góður kandidat í plötu ársins.

lag6: Tune-Yards - Powa


- líkt við Sonic Youth - sem á þó ekki við tónlistarlega. Sagt að ef að Bird-Brains væri EVOL - þá væri W H O K I L L - eins og Sister. Svona la la samlíking.

- Lisa Ella Jones, kom hingað ásamt bandi á Iceland Airwaves 2006.

- Er komin með nýtt band - eitursvalt.

- Eyddu stórum hluta síðasta árs að spila með Kasabian. Lisa syngur á nýjustu plötu þeirra - auk þess að hafa komið fram með Unkle og fleirum.

- Dark Horses vísar í orðatiltæki - um einstaklinga sem virðast í fyrstu ekki mjög tiltækilegir en skjótast svo upp á yfirborðið sem undrabörn.

- Þar er m.a. ungur drengur sem kallar sig Tommy Chain - og spilar á keðjur með sveitinni læf.

lag7: Dark Horses - Alone

lag8: Panda Bear - You Can Count On Me

SELEBB SHUFFLE: Krummi Björgvins

lag9: Mammút - Bakkus

lag10 : Kim&Elsa - Yes/No

Umfjöllun: Kurt Vile - Smoke Rings for My Halo

lag11: Kurt Vile - Baby's Arms


- Má ekki rugla við þýska tónskáldið Kurt Weil. Sá samdi m.a. Mack the Knife og dó árið 1050.

- Kurt Vile er fæddur 1980 í Philadelphiu. Leikur lo-fi indie-folk og hefur verið líkt við allt á milli Bruce Spingsteen, Bob Seger og Tom Petty. Er þó örlítið meira út á kant en allir þessir. Röddin minnir mig stundum á Reid bræðurna úr The Jesus & The Mary Chain.

- Þetta er fjórða plata hans á þremur árum. En hann hefur gefið út hjá Matador records frá því árið 2009.

- Síðasta hans, Childish Prodigy, kom út fyrir tveimur árum síðan og var í sérstöku uppáhaldi hjá Kim Gordon úr Sonic Youth. Alltaf gæðastimpill.

lag12: Kurt Vile - On Tour


- Á enn eftir að komast upp á yfirborðið. Tónlist hans er þó aðeins byrjuð að heyrast í sjónvarpsþáttum og öðru slíku. Til dæmis var lagið hans He's Allright notað sem lokalag í lokaþætti annarrar seríu af EastBound & Down er fylgist með svaðalegum ævintýrum fyrrum hafnabolta hetjunnar Kenny Powers. Ótrúlegir þættir þar sem Danny McBride fer með aðalhlutverkið.

- Núna í næsta mánuði verður hátíðin All Tomorrow's Parties haldin - og eru það Animal Collective sem sáu um að bjóða tónlistarfólki á hátiðina í ár og er Kurt Vile einn þeirra sem þar koma fram.

lag13: Kurt Vile - Runner Ups

lag14: Radio Royal - Translations (Agent Fresco remix)

lag15: PJ Harvey - On Battleship Hill







Fleiri fréttir

Sjá meira


×