Golf

Tiger ætlar að ná US Open

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Tiger Woods varð að draga sig úr keppni á Players-meistaramótinu um síðustu helgi en hann segir útlitið betra en á horfðist. Honum tókst aðeins að leika 9 holur á mótinu.

Gömul meiðsli í ökkla og hné tóku sig upp hjá Tiger en engar nýjar skemmdir komu fram.

"Þetta voru mikil vonbrigði. Ég mun gera allt sem ég get til þess að ná opna bandaríska mótinu," sagði Tiger.

Það mót hefst 16. júní.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×