Golf

Masters: Rory McIlroy ætlar að koma sterkari til baka

Norður-Írinn Roy McIlroy hefur eflaust átt erfitt með svefn í nótt eftir að hann klúðraði niður fjögurra högga forskoti sínu á lokadegi Mastersmótsins í golfi í gær.
Norður-Írinn Roy McIlroy hefur eflaust átt erfitt með svefn í nótt eftir að hann klúðraði niður fjögurra högga forskoti sínu á lokadegi Mastersmótsins í golfi í gær. AP
Norður-Írinn Roy McIlroy hefur eflaust átt erfitt með svefn í nótt eftir að hann klúðraði niður fjögurra högga forskoti sínu á lokadegi Mastersmótsins í golfi í gær. McIlroy lék á 80 höggum eða +8 en hann var samtals á -12 eftir þriðja keppnisdaginn og hann var efstur á mótinu í samtals 63 holur af alls 72. McIlroy bar sig vel í gær þrátt fyrir áfallið og hann lofar því að koma sterkari til baka.

Martröðin hófst hjá McIlroy eftir teighöggið á 10., en þar fór boltinn í tré og kom næstum því til baka á teiginn. Hann lék þá braut á +3 og eftir það fór flest úrskeiðis hjá hinum 21 árs gamla McIlroy. Hann endaði í 15. sæti  og var hann 10 höggum á eftir Charl Schwartzel frá Suður-Afríku sem sigraði á -14.

„Það verður án efa erfitt hjá mér næstu daga en ég mun komast yfir þetta. Ég verð í góðu lagi, það er margt verra sem getur gerst í lífinu. Að leika illa á lokadegi á risamóti er ekkert miðað við það sem margir aðrir þurfa ganga í gegnum í lífinu,“ sagði McIlroy sem vonast til þess að geta nýtt sér reynsluna til hins betra.

„Ég læri vonandi eitthvað af þessu, ég hef aldrei áður verið efstur á lokadegi á risamóti og það virtist allt ganga vel á fyrri 9 holunum. Ég á eftir að fá fleiri tækifæri til þess að gera betur,“  sagði McIlroy.


Tengdar fréttir

Masters: Tiger var svekktur að hafa ekki nýtt tækifærið

Tiger Woods sýndi á lokakeppnisdeginum á Mastersmótinu í gær að hann er á réttri leið eftir erfiða 18 mánuði á atvinnumótaröðinni. Woods blandaði sér í baráttuna um sigurinn með því að leika á 67 höggum eða 5 höggum undir pari en bandaríski kylfingurinn var ósáttur við að hafa ekki nýtt tækifærið betur á síðari 9 holunum sem hann lék á pari eftir að hafa leikið fyrri 9 holurnar á 31 höggi.

Masters: Charl Schwartzel sigraði á ótrúlegum lokadegi

Það er óhætt að segja að Mastersmótið 2011 fari í sögubækurnar fyrir einn mest spennandi lokahring sögunnar. Charl Schwartzel frá Suður-Afríku kom öllum á óvart með því að landa sigri á þessu fyrsta risamóti ársins en hann hefur aldrei sigrað á PGA-móti á ferlinum. Lokarhringurinn var ótrúlegur en um tíma virtust 9-10 kylfingar eiga möguleika á því að klæðast græna jakkanum.

Masters: Hver er Charl Schwartzel?

Charl Schwartzel frá Suður-Afríku kom mörgum á óvart í gær þegar hann fagnaði sigri á Mastersmótinu í golfi en hinn 25 ára gamli kylfingur fékk fjóra fugla í röð á síðustu fjórum holunum og tryggði sér sigur á -14 samtals.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×