Formúla 1

Massa snar í snúningum í Barcelona

Felipe Massa á Ferrari á Barcelona brautinni í dag.
Felipe Massa á Ferrari á Barcelona brautinni í dag. Mynd: Getty Images/Mark Thompson
Felipe Massa hjá Ferrari var fljótastur þeirra Formúlu 1 ökumanna, sem æfðu á Barcelona brautinni á Spáni í dag. Massa varð 0.817 úr sekúndu á undan Mark Webber á Red Bull.

Í ljósi þess að æfingar í Barein 3.-6. mars hafa verið felldar niður vegna ástandsins í Barein og mótshald 13. mars frestað í bili eða fellt niður á þessu ári, þá munu Formúlu 1 lið æfa á ný í Bareclona 8.-11. mars. Tveimur vikum fyrir fyrsta mót ársins, sem verður í Melbourne í Ástralíu 27. mars.

Felipe Massa hefur í tvígang unnið mótið í Barein og sagði eftirfarandi í frétt á autosport.com um fréttir dagsins.

"Ég kann vel við Barein brautina og hefði því viljað byrja meistaramótið þar. En kannski förum við aftur þangað og keppum. Ég kann vel við brautina og að vera þar", sagði Massa.

"En ef við förum ekki, þá er það í lagi. Mannlegi þátturinn er mikilvægari en faglegi þátturinn og það sem er að gerast þar er alvarlegt. Ég vona að allt komist í lag. Öryggið er mikilvægast."

Tímarnir í dag.

 1.  Massa         Ferrari                1m22.625s           121

 2.  Webber        Red Bull-Renault       1m23.442s  + 0.817   69

 3.  Buemi         Toro Rosso-Ferrari     1m23.550s  + 0.925   90

 4.  Heidfeld      Renault                1m23.657s  + 1.032   95

 5.  Hamilton      McLaren-Mercedes       1m24.003s  + 1.378  107

 6.  Maldonado     Williams-Cosworth      1m24.057s  + 1.432  121

 7.  Sutil         Force India-Mercedes   1m24.177s  + 1.552   64

 8.  Perez         Sauber-Ferrari         1m24.515s  + 1.890   74

 9.  D'Ambrosio    Virgin-Cosworth        1m26.501s  + 3.876   50

10.  Schumacher    Mercedes               1m27.079s  + 4.454  114

11.  Trulli        Lotus-Renault          1m29.992s  + 7.367   18




Fleiri fréttir

Sjá meira


×