Formúla 1

Ross Brawn seldi eignarhlut sinn til Mercedes

Michael Schumacher, Ross Brawn og Nico Rosberg á frumsýningu liðsins á 2011 bíl Mercedes.
Michael Schumacher, Ross Brawn og Nico Rosberg á frumsýningu liðsins á 2011 bíl Mercedes. Mynd: Getty Images/Paul Gilham
Framkvæmdarstjóri Mercedes Formúlu 1 liðsins, Ross Brawn hefur selt hlut sinn í Mercedes liðinu til Mercedes og fjórir aðrir hluthafar hafa gert slíkt hið sama. Brawn verður áfram framkvæmdarstjóri liðsins, en ökumenn Mercedes eru Michael Schumacher og Nico Rosberg.

Brawn, Nick Fry, Caroline McGrory, John Marsden og Nigel Kerr áttu 24.9% í Mercedes liðinu, eftir að Mercedes keypti vænan hlut í Brawn GP liðinu og stofnaði lið undir eigin merkjum. Fimmenningarnir héldu þessum hlut efir þau kaup.

Brawn liðið hafði keypt búnað Honda liðsins árið 2009 og liðið varð fremur óvænt meistari bílasmiða árið 2009 og Jenson Button, ökumaður liðsins meistari ökumanna. Brawn liðið notaði Mercedes vélar það ár.

Mercedes keypti síðan stóran hlut í Brawn GP liðinu, nafninu var breytt og liðið keppti í fyrra sem Merdedes og hefur nú klárað yfirtökuna fullkomlega ásamt fyrirtækinu Arabar samkvæmt frétt í dag á autosport.com.

"Við erum að fjárfesta í framtíð Formúlu 1 og það er ferli sem þarf að lærast", sagði Nober Haug hjá Mercedes um kaup Mercedes og Arabar á hlutum fimmenninganna.

Haug sagði ekki í burðarliðnum að setja meira rekstrarfé í liðið í ljósi kaupanna. Haug segir Mercedes liðið nú þegar hafa næga peninga til að gera góða hluti. Mercedes bílaverksmiðjan útvegar McLaren og Force India keppnisvélar í Formúlu 1, auk þess að reka eigið keppnislið.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×