Viðskipti erlent

Þriðjungur af Nóbelsjóðnum hefur gufað upp

Samkvæmt tölum frá stjórn Nóbelsjóðsins hefur hann rýrnað um þriðjung frá árinu 1999. Ástæðan er netbólan í upphafi aldarinnar og síðan fjármálakreppan sem enn sér ekki fyrir endann á.

Í frétt um málið á vefsíðunni e24.no segir að miðað við gengi sænsku krónunnar í dag var verðmæti sjóðsins 4,6 milljarðar sænskra kr. árið 1999 en í dag nemur það 3,1 milljarði sænskra kr. eða tæpum 52 milljörðum kr. Þetta er rýrnun upp á 32%.

Í netbólunni tapaði sjóðurinn einum milljarði sænskra kr. og í fjármálakreppunni sem hófst árið 2008 fór verðmæti sjóðsins lægst niður í 2,9 milljarða sænskra kr. en sjóðurinn hefur síðan náð að rétta aðeins úr kútnum.

Stjórn Nóbelssjóðsins í Stokkhólmi ber ábyrgð á rekstri hans en sjóðurinn fjárfestir aðallega í hlutbréfum í Bandaríkjunum, Evrópu og Japan auk þess að liggja með fé bundið í sænskum eignum og skuldabréfum. Þá hefur sjóðurinn lagt nokkuð fé í vogunarsjóði.

Á árunum frá 1999 og þar til í fyrra úthlutaði sjóðurinn alls 115 milljónum sænskra kr. til verðlaunahafa sinna en alls er um sex verðlaun að ræða sem veitt eru á hverju ári.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×