Flýja Bretland vegna skattahækkana Jón Hákon Halldórsson skrifar 21. mars 2010 08:00
Tveir stærstu vínframleiðendur í heimi ætla að flytja starfsemi sína frá Bretlandi vegna mikilla skattahækkanna þar í landi. Constellation Brands og Foster's Group sem framleiða meðal annars víntegundirnar Hardys, Lindemans og Penfolds og eru með þúsundir manna í vinnu á Bretlandi saka ríkisstjórnina um að rústa vínmarkaðnum í Bretlandi með stöðugum skattahækkunum. Bæði fyrirtækin hafa sagt upp starfsfólki og eru þegar byrjuð að flytja starfsemi sína til annarra ríkja í Evrópu. Áfengisgjald í Bretlandi hefur hækkað í Bretlandi um 20% síðan í mars í fyrra og ríkisstjórnin er þegar að ræða frekari skattahækkanir. Troy Christensen, forstjóri Constellation í Evrópu, segir að ríkisstjórnin hafi gengið of langt. Verið sé að eyðileggja víniðnaðinn. Fyrirtækið sé ekki að biðja um ríkisstuðning heldur að vera látið í friði.
Mest lesið Stærðin skiptir ekki máli Atvinnulíf Megi troða „singles day“ upp í greiðslugáttirnar á sér Neytendur Ólafur Ingi: „Ég er kostuð eiginkona“ Atvinnulíf Einróma niðurstaða að Hörður sé eins og Kristján í Frozen Atvinnulíf Þurfti ekki að sýna fram á að greitt hafi verið fyrir duldar auglýsingar Neytendur Óábyrgt að afskrifa kílómetragjaldið Neytendur Kílómetragjaldið mögulega fórnarlamb stjórnarslita Neytendur Nýr flugrekstrarstjóri Icelandair Viðskipti innlent „Reglugerðin tekur gildi hvort sem menn hafa þetta hugrekki eða ekki“ Atvinnulíf Engin endurgreiðsla þrátt fyrir rifbeinsbrot Neytendur Fleiri fréttir Linkedin sektað um tugi milljarða Samkeppni eykst í Grænlandsflugi Sekta Google um meira en allan pening heimsins Adidas og Ye sættast Bjóða upp á veðmál um leiki barna og styrkja knattspyrnurisa Bein útsending: Hver hlýtur hagfræðiverðlaun sænska seðlabankans? United Airlines hefur flug milli New York og Nuuk Viðskiptavinir gjaldþrota rafmyntakauphallar endurheimta milljarða Samþykktu allt að 45 prósent toll á kínverska rafbíla Samið um lok umfangsmikils verkfalls hafnarverkamanna Sjá meira