Hart barist um Gullpálmann 21. maí 2010 08:15 Alejandro Gonzalez Inarritu og Javier Bardem eru staddir í Cannes til að kynna mynd sína Biutiful. Nordicphotos/Getty
Kvikmyndahátíðinni í Cannes lýkur á sunnudaginn þegar sjálfur Gullpálminn, Palme d"Or, verður afhentur. Ljóst er að baráttan um verðlaunin verður hörð. Cannes-hátíðin í Frakklandi er nú haldin í 63. sinn. Formaður dómnefndar er bandaríski leikstjórinn Tim Burton og á meðal þeirra sem sitja með honum í nefndinni eru leikararnir Benicio del Toro og Kate Beckinsale. Hátíðin hefur hingað til gengið vel fyrir sig, þrátt fyrir að einhverjir hafi kvartað yfir færri stjörnum á svæðinu en vanalega. Sömuleiðis hefur askan úr Eyjafjallajökli sett smávægilegt strik í reikninginn varðandi ferðir til og frá Frakklandi. Breska leikkonan Kate Beckinsale er í dómnefnd Cannes-hátíðarinnar. Svo virðist sem bestu kvikmyndirnar hafi verið geymdar þar til síðast. Má þar nefna nýjustu mynd hins mexíkóska Alejandro Gonzalez Inarritu, Biutiful. „Ég er oftast mjög gagnrýninn á sjálfan mig," sagði Inarritu. „En ég er enn þá að bregðast við þessari mynd og ég öðlast sífellt meiri skilning á henni eftir því sem ég horfi á hana oftar." Í myndinni leikur Javier Bardem dauðvona mann sem vill bæta líf allra í kringum sig, þar á meðal þeirra sem hann hefur áður farið illa með. Inarritu er þekktur fyrir myndirnar Babel, 21 Grams og Amores perros og er fyrir vikið orðinn mikilsvirtur í kvikmyndaheiminum. Aðrir áhugaverðar myndir á Cannes eru Praise eftir kóreska leikstjórann Lee Chang-dong. Aðalleikkonan Yun Jung-hee hefur fengið mikið lof fyrir hlutverk sitt sem eldri kona sem leitar í ljóðlistina eftir innblæstri í lífinu. Gamanmynd Bretans Mike Leigh, Another Year, hefur einnig vakið athygli og þá sér í lagi frammistaða Lesley Manville í aðalhlutverkinu. Þar leikur hún einmana miðaldra konu sem glímir við hversdagslega hluti í lífi sínu. Mike Leigh vann Gullpálmann í Cannes árið 1996 fyrir Secrets and Lies. Kvikmyndin Un homme qui crie eftir Mahamat-Saleh Haroun frá hinu stríðshrjáða ríki Chad í Afríku þykir sigurstrangleg. Hún fjallar um mann á sjötugsaldri sem þarf að gefa eftir starf sitt sem laugarvörður á fínu hóteli til sonar síns. Rómantíska gamanmyndin Certified Copy í leikstjórn hins íranska Abbas Kiarostami hefur einnig hlotið góðar viðtökur og gæti vel hlotið Gullpálmann. Þar gæti spilað inn í að landi hans, Jafar Panahi, var fangelsaður skömmu áður en hann átti að sitja í dómnefnd hátíðarinnar. freyr@frettabladid.is Bandaríska fyrirsætan Camilla Belle á frumsýningu Wall Street - Money Never Sleeps.Spænska leikkonan Elsa Pataky á frumsýningu You Will Meet a Tall Dark Stranger.Bandaríska fyrirsætan Hofit Golan á frumsýningu Tournee.Franski leikstjórinn Tonie Marshall á frumsýningu La Princesse de Montpensier.Cate Blanchett á frumsýningu Robin Hood.Eva Longoria á frumsýningu Robin Hood.Franska leikkonan Aissa Maiga á frumsýningu Il Gattopardpo.Franska leikkonan Roxane Mesquida og bandaríska leikkonan Haley Bennett á frumsýningu Wall Street - Money Never Sleeps.Spænska leikkonan Rossy de Palma á frumsýningu You Will Meet a Tall Dark Stranger.Franski rithöfundurinn Amanda Sthers á frumsýningu Wall Street.Kínverska leikkonan Fan Bing Bing.Franska leikkonan Frederique Bel á frumsýningu Robin Hood.Fyrirsætan Jovanka Sopalovic á frumsýningu La Princesse de Montpensier.Franski leikstjórinn Christophe Guillarme mætti með fyrirsætuna Hofit Golan upp á arminn.Fyrirsætan Jovanka Sopalovic.Glæsilegur frumsýningargestur á La Princesse de Montpensier.Helen Mirren á frumsýningu Robin Hood.Franska leikkonan Julie Gayet.Indverska fyrirsætan Aishwarya Rai.Kanadíska leikkonan Evangeline Lilly og malasíska leikkonan Michelle Yeoh á frumsýningu You Will Meet a Tall Dark Stranger.Kate Beckinsale á frumsýningu Wall Street. Hún er einn dómnefndarmeðlima í ár.Laura Chiatti á frumsýningu Robin Hood.Malasíska leikkonan Michelle Yeoh á frumsýningu Wall Street.Mexíkóska leikkonan Salma Hayek á frumsýningu Wall Street - Money Never Sleeps.Franska leikkonan Elsa Zylberstein á frumsýningu Tournee.Franska leikkonan Frederique Bel á frumsýningu Wall Street.Bandaríska fyrirsætan Velvet D'Amour á frumsýningu Tournee.Spænska leikkonan Pilar Lopez de Ayala á frumsýningu You Will Meet a Tall Dark Stranger.Tékkneska fyrirsætan Eva Herzigova á frumsýningu La Princesse de Montpensier.
Lífið Menning Mest lesið Óttast ekki dauðann en vill gjarnan meiri tíma með sínu fólki Lífið Loksins sást til hjónanna Lífið Fréttatía vikunnar: Hundur, steypubíll og Harry Styles Lífið Björk og Yara nýtt par Lífið Sárreiðir Rúvar-ar hafna því að Megasi hafi verið slaufað Lífið Flýta tónleikum „svo túristarnir geti farið að hátta“ Lífið Joanna Pettet er látin Bíó og sjónvarp Fullkominn kókos og chiagrautur að hætti Elísabetar Mettu Lífið Kathy Griffin komin með 22 ára kærasta Lífið Harry og Meghan heimsóttu konungshjónin Lífið Fleiri fréttir Loksins sást til hjónanna Óttast ekki dauðann en vill gjarnan meiri tíma með sínu fólki Fréttatía vikunnar: Hundur, steypubíll og Harry Styles Flýta tónleikum „svo túristarnir geti farið að hátta“ Harry og Meghan heimsóttu konungshjónin Krummafótur um helgina Adda og Alfreð eignuðust dreng Sárreiðir Rúvar-ar hafna því að Megasi hafi verið slaufað Óttar og Rafnhildur Rósa eiga von á stúlku Kathy Griffin komin með 22 ára kærasta „Engir áhrifavaldar, engin þjóð“ Fylgjendafjöldi Kristrúnar fimmfaldast Frumsýning á Vísi: Síðasta „flugeldasýning“ Iceguys Myndaveisla: Ríflega fimmtíu söguleg seglskip prýddu flóann Nýtt smáforrit fyrir Þjóðhátíðargesti Björk og Yara nýtt par Dóu ekki ráðalaus þegar Dýrafjarðardagar döguðu uppi Aldrei verið skömmuð jafn mikið og í Stokkhólmi Hægara sagt en gert að ná lélegum myndum The Pitt með flestar tilnefningar til Emmy-verðlauna Hvað veistu um... Kristrúnu Frostadóttur? Qualley og Antonoff í sundur Björgvin Franz og Bryndís fundu ástina á fjölum Borgó Leiða áhorfendur gegnum garðinn eftir lokun Þrúður Vilhjálmsdóttir er látin Erótísk saga um fyrstu kynni lesin upp í brúðkaupinu Í uppáhalds kjólnum við sólseturs-bónorðið „Þurfti hann að detta niður dauður til að vera spilaður?“ Megas er látinn Guðrún Sóley gengin út Sjá meira