Viðskipti erlent

Eistland fær evruna sem gjaldmiðil

Fjármálaráðherrar 27 þjóða ESB hafa samþykkt að Eistland verði hluti af evrusvæðinu. Mn Eistland því taka upp evruan sem gjaldmiðil frá og með 1. janúar 2011.

Í frétt um málið á börsen.dk segir að þar með láti fjármálaráðherrarnir sér í léttu rúmi liggja áhyggjur evrópska seðlabankans um verðbólguþróunina í Eystrasaltsríkjunum. Bankinn telur að þau ríki muni lenda í vandræðum með að halda verðbólgunni innan 2,5% markanna sem áskilin eru á evrusvæðinu.

Jürgen Ligi fjármálaráðherra Eistlands segir að þessar áhyggjur séu ástæðulausar. Það sé ekkert í spilunum sem bendi til þess að verðbólgan í Eistlandi sé að fara úr böndunum. Þar að auki hafi seðlabankinn ætíð sagt þetta þegar ný lönd hafa fengið evruna sem gjaldmiðil.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×