Viðskipti erlent

Noda nýr fjármálaráðherra Japans

Noda var áður aðstoðarfjármálaráðherra.
Noda var áður aðstoðarfjármálaráðherra. Mynd/AP
Naoto Kan, forsætisráðherra Japans, hefur skipað Yoshihiko Noda sem fjármálaráðherra. Hann tekur við af Kan sem tók sjálfur við embætti forsætisráðherra í fyrradag eftir að Yukio Hatoyama sagði óvænt af sér í vikunni eftir deilur um framtíð bandarísku herstöðvarinnar á eyjunni Okinawa.

Noda var áður aðstoðarfjármálaráðherra. Hann er sagður fylgjandi skattahækkunum og umfangsmiklum aðgerðum til að örva efnahagslífið.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×