Viðskipti erlent

Fjöldi fátækra Dana hefur aldrei verið meiri

Fjöldi þeirra sem lifa undir fátækramörkunum í Danmörku hefur aldrei verið meiri í sögunni. Yfir 300.000 Danir teljast nú til fátækra þar í landi.

Þetta kemur fram í nýrri skýrslu sem gerð var á vegum heildarsamtaka dönsku verkalýðshreyfingarinnar. Fram kemur að frá árinu 2001 hefur fátækum í Danmörku fjölgað um 40% og fær núverandi hægri stjórn landsins sökina fyrir þessa þróun enda hefur hún setið að völdum allan þennan tíma.

Lars Andersen talsmaður hópsins sem vann skýrsluna segir að nú sé hægt að sjá það svart á hvítu að stefna ríkisstjórnarinnar á sök á því að fátækt hefur aukist þetta mikið í Danmörku,

Fátæktarmörkin í Danmörku eru miðuð við að einstaklingur sem heldur heimili hafi minna en tvær miljónir kr. í tekjur umfram skatta árlega. Fyrir par er upphæðin 3 milljónir króna en upphæðin lækkar á hvern einstakling eftir því sem fleiri eru í heimili.

Skýrslan sýnir að fátæktin kemur hvað harðast niður á börnum en um 31.000 börn undir 18 ára aldri tilheyra fjölskyldum sem lifa undir fátæktarmörkunum.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×