Formúla 1

Pedro de la Rosa aldrei betri

Pedro de la Rosa hjá Sauber.
Pedro de la Rosa hjá Sauber. Mynd. Getty Images

Spánverjinn Pedro de la Rosa sneri aftur í Formúlu 1 sem keppnis ökumaður í ár rétt eins og Michael Schumacher. Pedro ekur hjá Sauber liðinu og er spænskur að uppruna, en var lengi vel þróunarökumaður McLaren og mikils metinn sem slíkur.

En draumurinn var að geta keppt og þegar Sauber bauð samning stökk Pedro til og segist aldrei hafa ekið betur.

"Við náðum í lokaumferð tímatökunar í Ungverjalandi og náðum í stig í mótinu og ég held að ég sé að aka betur en nokkurn tímann áður. Ég veit ekki með aðra ökumenn, en ég er að komast í mjög gott form", sagði Pedro í samtali við autosport.com.

"Við höfum bætt bílinn síðan í Valencia og einbeitt okkur að laga bílinn í gegnum hægar beygjur. Þess vegna var árangurinn í síðasta móti áhugaverður, í Ungverjalandi. Við erum núna samkeppnisfærir á öllum tegundum brauta eftir bréytingar á bílnum."

Nýr yfirmaður tæknimála er hjá Sauber liðinu og hann heitir James Key og hann hefur breytt gangi mála talsvert.

"Hann hefur breytt miklu og liðið í heild sinni hefur tekið framförum og ég er mjög þakklátur honum", sagði Pedro. Liðið nýtir líka reynslu Pedro til hins ýtrasta og liðið hefur örugglega skilað sér lengra en ella í ljósi þess að hann er ökumaður liðsins ásamt hinum sprettharða Kamui Kobayashi frá Japan.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×