Viðskipti erlent

Hagnaður Goldman Sachs langt umfram væntingar

Hagnaður Goldman Sachs á fjórða ársfjórðungi síðasta árs reyndist langt umfram væntingar sérfræðinga. Alls nam hagnaðurinn 4,95 milljörðum dollara eða rúmlega 630 milljarðar kr. eftir skatta.

Samkvæmt frétt á Bloomberg var þessi hagnaður 60% meiri en hópur sérfræðinga fréttaveitunnar hafði gert ráð fyrir. Hagnaðurinn samsvarar 8,20 dollurum á hlut en meðaltalsspá 21 sérfræðings gerði ráð fyrir 5,18 dollurum á hlut.

Til samanburðar má nefna að Goldman Sachs skilaði tapi upp á 2,12 milljarða dollara á fjórða ársfjórðungi ársins 2008.

Lloyd Blankfein forstjóri Goldman Sachs segir í tilkynningu um uppgjörið að bankinn sjá fram á áframhaldandi vöxt þrátt fyrir efnahagslegan mótvind í augnablikinu.

Fyrir árið 2009 í heild reyndist hagnaður Goldman Sachs nema 13,4 milljörðum dollara eða rúmlega 1.700 milljörðum kr.










Fleiri fréttir

Sjá meira


×