Formúla 1

Tvöfaldur McLaren sigur í Montreal

Jenson Button fagnar sigri í beinni útsendingu í Montreal í dag.
Jenson Button fagnar sigri í beinni útsendingu í Montreal í dag. Mynd: Getty Images

 

Bretarnir Lewis Hamilton og Jenson Button tryggðu McLaren liðinu tvöfakdan sigur í Formúlu 1 mótinu í Montreal í Kanada í dag. Hamilton varð á undan, en Fernando Alonso tryggði Ferrari þriðja sætið eftir viðburðaríka keppni.

Hamilton var fremstur á ráslínu og náði forystu, en um tíma leiddi Mark Webber mótið, en varð að gefa eftir í lokin. McLaren beitti fulkominni keppnisáætlun varðandi dekkjamál og það gerði gæfumininn, auk þess sem Hamilton ók af miklu kappi. Hann átti oft snarpar viðureignir við Alonso í brautinni og hafði betur á endanum og seig svo framúr Webber.

Button náði að snúa á Alonsoí slag um annað sætið líka undir lokin. McLaren vann því tvöfaldan sigur í öðru mótinu í röð og er komið með gott forskot í stigakeppni bílasmiða og Button í keppni ökumanna.

Lokastaðan í Montreal og stigin

 

1. Hamilton McLaren-Mercedes 1h33:53.456

2. Button McLaren-Mercedes + 2.254

3. Alonso Ferrari + 9.214

4. Vettel Red Bull-Renault + 37.817

5. Webber Red Bull-Renault + 39.291

6. Rosberg Mercedes + 56.084

7. Kubica Renault + 57.300

8. Buemi Toro Rosso-Ferrari + 1 lap

9. Liuzzi Force India-Mercedes + 1 lap

10. Sutil Force India-Mercedes + 1 lap

1. Hamilton 109 1. McLaren-Mercedes 215

2. Button 106 2. Red Bull-Renault 193

3. Webber 103 3. Ferrari 161

4. Alonso 94 4. Mercedes 108

5. Vettel 90 5. Renault 79

6. Rosberg 74 6. Force India-Mercedes 35

7. Kubica 73 7. Williams-Cosworth 8

8. Massa 67 8. Toro Rosso-Ferrari 8

9. Schumacher 34 9. Sauber-Ferrari 1

10. Sutil 23






Fleiri fréttir

Sjá meira


×