Formúla 1

Breytt tímasetning á Formúlu 1 keppni

Formúlu 1 mótið í Melbourne í Ástralíu verður í beinni útsendingu kl. 5.30 á sunnudag, en ekki 6.30 eins og hefur verið kynnt víða í vikunni.

Keppnin fer að hluta til fram í ljósaskiptunum til að skapa meiri stemmningu og er því ræst af stað kl. 06.00. Vegna mistaka var röng tímasetning kynnt hérlendis í vikunni í fjölmiðlum.

Háfltíma upphitun verður á undan kappakstrinum og hefst hún kl. 5.30 að íslenskum tíma. Mótið verður endursýnt í heild sinni í hádeginu á sunnudag á Stöð 2 Sport eða kl. 12.00.

Tímatakan er í beinni útsendingu kl. 5.45 í nótt og verður endursýnd í hádeginu á laugardag og einnig á undan kappakstrinum á sunnudag.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×