Formúla 1

Skipan ökumanna í riðla í kappakstursmóti meistaranna

Mótssvæðið sem notað verður í kappakstursmóti meistaranna í dag og var notað í keppni þjóða í gær.
Mótssvæðið sem notað verður í kappakstursmóti meistaranna í dag og var notað í keppni þjóða í gær. Mynd: Getty Images/Stuart Franklin
Michael Schumacher og Sebastian Vettel geta bætt við öðrum gullverðlaunum í kappakstursmóti meistaranna, þegar þeir keppa í einstaklingskeppni milli sextán ökumanna á malbikaðri braut í Dusseldorf í Þýskalandi í dag. Þeir tryggðu Þýskalandi bikar þjóða í gær. Mótið fer fram á knattspyrnuleikvangi sem búið að er útbúa sem kappaksturs mótssvæði og er mótið í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport frá kl. 11.45 og fram eftir degi. Fyrst er riðlakeppni og svo keppa ökumenn í útsláttarkeppni, þar til einn verður eftir sem sigurvegari. Vinni annaðhvort Schumacher eða Vettel, verður annarhvor tvöfaldur sigurvegarai helgarinnar. Vettel mun aka Formúlu 1 meistarabíl sínum í sýningaratriði í dag. A riðill:
 Sébastien LOEB, sjöfaldur heimsmeistari í rallakstri
 Heikki KOVALAINEN, ökumaður Lotus í Formúlu 1
J eroen BLEEKEMOLEN, tvöfaldur sigurvegar í Porsche Super Cup
 Bertrand BAGUETTE, meistari 2009 í Nissan World Series

 B riðill:
 Tom KRISTENSEN, áttfaldur meistari í Le Mans 24 hours
 Andy PRIAULX, þrefaldur meistari í World Touring Car 
Mick DOOHAN, fimmfaldur mótorhjólameistari  (500c)
 Travis PASTRANA, ellefaldur gullverðlaunahafi í X-Games

 C riðill:
 Sebastian VETTEL, heimsmeistari í Formúlu 1 2010
 Carl EDWARDS, meistari í 2007 NASCAR Nationwide Series
 Filipe ALBUQUERQUE, vann ROC Suður Evrópu 2010
 Tanner FOUST, vann í rall og rallikrossi  X-Games 2010

 D riðill:
 Michael SCHUMACHER, sjöfaldur meistari í Formúlu 1 Alain PROST, fjórfaldur meistari í Formúlu 1
 Jason PLATO, tvöfaldur meistari í British Touring Car Alvaro PARENTE, vann ROC South Evrópu 2010



Fleiri fréttir

Sjá meira


×