Formúla 1

Barrichello setur markið hærra

Rubens Barrichello ekur hjá Williams, en var í meistaraliði Brawn í fyrra.
Rubens Barrichello ekur hjá Williams, en var í meistaraliði Brawn í fyrra. Mynd: Getty Images
Rubens Barrichello vonast eftir góðum árangri á Williams á heimavelli liðsins á Silverstone um helgina. Williams hefur ekki landað sigri í mörg herrans ár, en hefur unnið marga meistaratitila gegnum tíðina. Williams er staðsett í Bretlandi eins og sjö önnur keppnislið og heimavöllurinn því kærkominn, en liðið mætir með endurbættann bíl á brautina eftir betri frammistöðu í síðustu keppni, en oft áður á þessu ári. Barrichello varð fjórði í keppninni í Valencia. Í fyrra vann hann það mót með Brawn, en flutti sig yfir til Williams í ár. "Þetta var gott fyrir liðsandann, en við þurfum að skila okkur ofar", sagði Barrichelli í frétt frá Silverstone brautinni á autosport.com um góðan árangur Williams í Valencia. "Bíllinn breyttist fyrir mótið í Montreal, en okkur gekk ekki sérlega vel, en það gekk betur í Valencia. Hann ætti að verða enn betri hérna. Það er erfitt að meta hvort bíllinn verður 0.4-0.5 sekúndum sneggri en áður. Bíllinn er allt í lagi á háhraðabrautum, en ekki frábær. Það gæti batnað núna." "Það er markmið okkar að ná einu af tíu efstu sætunum í tímatökun út tímabilið og ná í eitt af sex efstu sætunum í mótunum sjálfum. Það er markmiðið til loka ársins", sagði Barrichello.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×