Viðskipti erlent

Þróunarríki fá meiri áhrif innan AGS

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Dominique Strauss Kahn, framkvæmdastjóri Alþjóðagjaldeyrissjóðsins, er í Suður Kóreu. Mynd/ AFP
Dominique Strauss Kahn, framkvæmdastjóri Alþjóðagjaldeyrissjóðsins, er í Suður Kóreu. Mynd/ AFP
Fjármálaráðherrar frá stærstu tuttugu iðnríkjum heims hafa samþykkt breytingar á Alþjóðagjaldeyrissjóðnum.

Samkvæmt breytingunum munu stærstu þróunarríki heims fá meiri atkvæðavægi. Þróunarríkin munu einnig fá fleiri sæti í stjórn Alþjóðagjaldeyrissjóðsins en Vestur-Evrópuríki munu missa tvö sæti.

Bandaríkin munu hins vegar halda neitunarvaldi sínu í öllum meiriháttar ákvörðunum sem Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn tekur.

G 20 ríkin eru að funda í Suður Kóreu þessa dagana, eftir því sem fram kemur á vef BBC.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×