Viðskipti erlent

Danskir forstjórar fitna meðan starfsmenn missa vinnuna

Margir forstjórar danskra stórfyrirtækja hafa sjaldan haft það betra hvað laun og hlunnindi varðar. Á sama tíma hafa þeir rekið fjölda starfsmanna í nafni sparnaðar og hagræðingar.

Ekstra Bladet birti viðamikla úttekt á þessari þróun í helgarblaði sínu. Þar eru tekin nokkur dæmi og má þar meðal annars nefna Sören Eriksen forstjóra DSB eða dönsku járnbrautanna.

Launhækkun Eriksen á síðasta ári nam næstum einni milljón danskra króna eða tæplega 20 milljónum króna. Á sama tíma rak hann 231 af starfsmönnum DSB í nafni nauðsynlegrar hagræðingar.

Annað dæmi er Helge Israelsen forstjóri danska póstsins. Hann rak 350 starfsmenn í fyrra á sama tíma og hann sjálfur fékk tæplega 9 milljónir danskra króna eða 180 milljónir króna í laun og hlunnindi á seinni hluta síðasta árs. Þetta samsvarar því að hann hafi haft laun á við 70 bréfbera á hverjum degi.

Af öðrum fyrirtækjum þar sem svipuð þróun hefur verið upp á teningnum má nefna Dong, Carlsberg, Vestas og Kastrupflugvöll.












Fleiri fréttir

Sjá meira


×