Benedikt leikstýrir sér í Íslandsklukkunni 25. ágúst 2010 11:00 Benedikt leikstýrir og leikur í Íslandsklukkunni í Þjóðleikhúsinu í vetur. „
Það verður mjög áhugavert að geta staðið á sviðinu á móti mótleikara og sagt honum til," segir Benedikt Erlingsson, sem leysir Björn Hlyn Haraldsson af hólmi í hlutverki Arnasar Arneuss í Íslandsklukkunni í Þjóðleikhúsinu. Björn Hlynur er á leiðinni til London með Vesturporti vegna sýningarinnar Faust og mun Benedikt, sem er einnig leikstjóri Íslandsklukkunnar, hlaupa í skarðið fyrir hann í fimm vikur. „Það verður hækkað miðaverð á þessum sýningum," segir Benedikt og glottir. Fleiri breytingar verða á leikaraliðinu í Íslandsklukkunni því Brynhildur Guðjónsdóttir tekur við af Ilmi Kristjánsdóttur sem Jón Grindvíkingur þar sem Ilmur er að fara leika í Fólkinu í kjallaranum í Borgarleikhúsinu. Ólafur Egill Ólafsson tekur við af Stefáni Halli Stefánssyni og Jóhannes Haukur leysir Ólaf Darra Ólafsson af hólmi. „Með fullri virðingu fyrir gömlu leikurunum finnst mér leikaraliðið sem tekur við miklu betra. Það er hneyksli að þetta skuli ekki hafa verið svona frá byrjun," segir Benedikt. Björn Hlynur leikur Arnas Arneuss fyrstu vikuna eftir að sýningar hefjast en síðan tekur Benedikt við keflinu í lok september. Benedikt hefur aldrei áður leikstýrt mótleikara sínum og segir það í raun bannað í leikhúsi. Þrátt fyrir það óttast hann enga árekstra á sýningunum. „Ég er eiginlega búinn að leikstýra þeim í þessu. Ég fæ ekki mikið að segja við leikarana lengur. Nú verð ég bara að standa mig. Það er frekar að þeir horfi á mig tortryggnir og hæðnir með spurnarsvip í augunum: 'Ætlarðu virkilega að leika þetta svona?'." Íslandsklukkan hlaut fern Grímuverðlaun í júní síðastliðnum. Þar af hlutu Ingvar E. Sigurðsson og Björn Thors hvor sína styttuna. -fb
Lífið Mest lesið Ranglega greind með MS-sjúkdóm Lífið Tískudrottning og fréttamaður selja í Vesturbæ Lífið Sahara Ray látin Lífið Verður að geta hent sér í hnébeygju Tíska og hönnun Sagður hafa valið sjálfan sig til að troða upp á Ofurskálinni Tónlist Bjarni Ben og Inga Lind gæddu sér á túnfiski Lífið Hvað veistu um… Nylon? Lífið Wahlberg segir flugmennina hafa bjargað lífi sínu Lífið Miðaldra kona þóttist vera sofandi í Epal Lífið Norðmenn hrepptu öll verðlaun Norðurlandaráðs Menning Fleiri fréttir Kristófer Acox selur íbúð með potti í Urriðaholti Umdeildur hlaðvarpspabbi orðinn móðir Harry vill sættast við fjölskylduna Miðaldra kona þóttist vera sofandi í Epal Ranglega greind með MS-sjúkdóm Tískudrottning og fréttamaður selja í Vesturbæ Jennifer Lopez að hitta Ted Lasso-stjörnu Wahlberg segir flugmennina hafa bjargað lífi sínu Hvað veistu um… Nylon? Sahara Ray látin Bjarni Ben og Inga Lind gæddu sér á túnfiski Richard Riehle látinn Costanza á klakanum Gjörbreytti einbýli í Kópavoginum Píparapæja selur pent „penthouse“ Sló í brýnu milli poppara yfir Ratcliffe Diljá Mist á lausu Stjörnulífið: Hannes heppinn með Diego Crawford minnist sonarins Pattra og Brynjar slá sér upp Eignar Ingu Sæland plötutitilinn „Ég held að maður megi semja svona við móður sína” Hefur beðið í fjögur ár eftir að frændinn afpláni dóm sinn Krakkatía vikunnar: Iceguys, Höfði og langimangi Siggi Bond og Birta Huld trúlofuð Bjóst ekki við svari strax og hvað þá frá Króatíu Örn Árnason fimmti keppandinn í Taskmaster „Þvílík gleði með þennan tíma“ Fluttur í annað fangelsi eftir fréttir af lúxuslífi og slagsmálum Sveitadraumurinn breyttist í martröð Sjá meira