Viðskipti erlent

Microsoft leitar að svari við iPad

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Steve Balmer leitar að svari við hinum geysivinsæla iPad. Mynd/ AFP.
Steve Balmer leitar að svari við hinum geysivinsæla iPad. Mynd/ AFP.
Steve Balmer, forstjóri Microsoft, segir að það sé forgangsatriði hjá fyrirtækinu að hanna búnað sem geti verið svar framleiðandans við Apple iPad. Balmer sagði á ráðstefnu í Seattle á dögunum að Microsoft ynni að því með fyrirtækjum á borð við HP, Lenovo, Asus, Dell og Toshiba að hanna tölvu með sömu eiginleikum og iPad. Það var breska blaðið Telegraph sem greindi frá þessu.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×